Beint í efni

16. (780). fundur

05.11.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

16. (780). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

05.11.2015

Kl. 17:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður. [line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. október er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1510036F

01

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 20/10 ´15.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., bréf íþróttafulltrúa um breyttan opnunartíma Álftaneslaugar og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Bæjarráð Garðabæjar samþykkti að stytta afgreiðslutíma sundlaugarinnar á Álftanesi vegna lítillar aðsóknar og kostnaðar við vaktafyrirkomulag. Samfylkingin í Garðabæ telur rétt að unnið verði að markaðssetningu á lauginni til að fjölga gestum. Sundlaugin er vel útbúin og hefur ákveðna sérstöðu á höfuðborgarsvæðinu sem rétt er að vekja athygli á.“

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórna um kaup á fasteignum sjóðsins og óskaði eftir nánari upplýsingum um stöðu málsins.

María Grétarsdóttir ræddi 14. tl., tillögu um breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs varðandi þjónustu við eldri borgara og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Garðabæjar kom fram hjá meirihlutanum að stefnt væri að því að bærinn ræki hjúkrunarheimilið Ísafold aðeins til 31. mars 2016. Fólkið í bænum leggur áherslu á að um opið ferli verði að ræða þannig að hagsmunir íbúa og bæjarbúa verði tryggðir.“

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 6. tl., bréf íþróttafulltrúa um breyttan opnunartíma og framlagða bókun. Bæjarstjóri ræddi 7. tl., bréf Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórna um kaup á fasteignum sjóðsins og gerði grein fyrir fundi með fulltrúum sjóðsins um málið. Þá ræddi bæjarstjóri 14. tl., tillögu um breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs varðandi þjónustu við eldri borgara og framlagða bókun.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti um stöðuna á vinnumarkaði í september. Sturla gerði nánari grein fyrir stöðunni í Garðabæ. Þá ræddi Sturla 12. tl., bréf SSH um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1510044F

02

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 27/10 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bréf Kvennakórs Garðabæjar um endurnýjun samnings og færði kórnum hamingjuóskir með frábæran árangur á kóramóti á Spáni en kórinn kom heim með gull- og silfurverðlaun.

María Grétarsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í fyrstu umræðu um fjárhagsáætlun Garðabæjar kom fram hjá meirihlutanum að bærinn áætlar ekki fjárframlög til Urriðaholtsskóla á næstu 4 árum umfram rekstrarframlög frá eigendum Urriðaholts. Fram hefur komið að fyrsti áfangi skólans muni kosta um 2,5 milljarða króna. Fólkið í bænum óskar eftir sundurliðun á áætluðum heildarframkvæmdakostnaði við byggingu skólans og búnað fram að áætlaðri opnun hans að hausti 2016. Einnig óskar Fólkið í bænum eftir upplýsingum um hvort metin hafi verið áhrif þessarar fjárfestingar bæjarins á fjárhag sveitarfélagsins í samræmi við 66. grein sveitarstjórnarlaga.“

Þá lagði María fram eftirfarandi tillögu.

„Fólkið í bænum, leggur til að í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016-2019 verði gert ráð fyrir fjármagni til að byggja fjölnota knatthús á Ásgarðssvæðinu samhliða frekari uppbyggingu á svæðinu. Með þessu fjármagni verði tryggt að framkvæmdir við fjölnota knatthús hefjist sem allra fyrst. Í áætlun komi fram heildarkostnaður við byggingu hússins, hvenær hafist verði handa við byggingu þess og hvenær því skuli lokið.“

Greinargerð

Þann 16. janúar 2014 samþykkti bæjarstjórn að skipaður yrði starfshópur undir forystu bæjarstjóra til undirbúnings byggingar fjölnota knatthúss í Garðabæ. Í greinargerð kom fram að verkefni starfshópsins væri að koma fram með tillögu um hvar byggt skuli fjölnota knatthús, af hvaða gerð og stærð og hvenær. Við ákvörðun um fjárfestingu vegna slíkrar framkvæmdar væri rétt að hafa í huga að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga. Við gerð slíks mats skyldi tekið tillit til annarra framkvæmda á vegum bæjarfélagsins og mat lagt á hvenær hægt væri að hefja framkvæmdir. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að forsvarsmenn bæjarfélagsins eigi samvinnu við foreldra og forsvarsmenn Stjörnunnar og er vísað í því efni til ályktunar félagsins frá október sl.

Þá María ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og óskaði eftir nánari upplýsingum um hvort samhliða fjölgun íbúða væri verið að auka byggingarmagn.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs. Þá ræddi Sigurður 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og svaraði fyrirspurn.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um fjölnota íþróttahús til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1510056F

03

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 3/11 ´15.

Steinþór Einarson, ræddi 7. tl., bréf foreldra á Álftanesi um þörf á leikskólarými fyrir ung börn og 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf foreldra á Álftanesi um þörf á leikskólarými fyrir ung börn og 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Björt framtíð leggur áherslu á að unnið verði á markvissari hátt að því að fjölga byggingu á litlum og ódýrum íbúðum í Garðabæ.“

Greinagerð:

Tillaga sem lögð var fram á þar síðasta bæjarstjórnarfundi um hugmyndasamkeppni um rammaskipulag á Lyngássvæðinu er góð og gild en hún er einnig tímafrek. Margt má gera í millitíðinni. Björt framtíð hvetur bæjaryfirvöld til að taka meðal annars vel í nýlegar umsóknir verktaka sem hafa óskað eftir lóðum til að byggja ódýrar íbúðir. Hefja á samtalið strax við þessa aðila og einnig að bjóða enn fleiri vertökum og byggingarfélögum að borðinu. Við þurfum skýra aðgerðaráætlun um það hvernig og hvenær við ætlum að bjóða upp á raunhæfa húsnæðiskosti fyrir ungt fólk og barnafólk.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Guðrún Elin Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

María Grétarsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu. Þá ræddi bæjarstjóri 1. tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 ? 2019 og vakti athygli á fjárveitingu til framkvæmda við fjölnota íþróttahús samkvæmt samþykktri þriggja ára áætlun 2016-2018.

Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1510039F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 22/10 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tillögu að deiliskipulagi Kirkjubrúar

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1510045F

05

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 7/9 ´15.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1510046F

06

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 26/10 ´15.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1510006F

07

Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/10 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., deiliskipulag Heiðmerkur, 2. tl., mengunarmælingar, 3. tl., fræðslu- og söguskilti og 4. tl., umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og og lagði til að nota svæði, þar sem verktaki framkvæmda við Álftanesveg hafði aðstöðu sem bílastæði, fyrir almenning.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., deiliskipulag Heiðmerkur og vakti athygli á fundum vegna forkynningar skipulagsins.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1502027

08

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 2/10 og 16/10 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fg. frá 2/10, fjárhagsáætlun og 4. tl., fg. 16/10, rekstrarúttekt.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., fg. frá 16/10, starfsmannamál og almennt um málefni byggðasamlaganna.

Gunnar Einarsson, ræddi málefni byggðasamlaganna.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1501125

09

Fundargerð Sorpu frá 16/10 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., lyktarmál í Álfsnesi, 2. tl., þjónustusamning um rekstur grenndargáma 3. tl., úttekt á innra eftirliti og 5. tl., lóð og aðstöðu Efnamóttökunnar í Gufunesi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1503138

10

Fundargerðir SSH frá 16/9 og 12/10 ´15.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1503137

11

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 16/10 ´15.

Steinþór Einarsson, ræddi erindi frá sveitarfélögunum um breytingar á aðalskipulagi og gerði nánari grein fyrir vinnu nefndarinnar við yfirferð mála.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1501297

12

Fundargerðir SHS frá 18/9 og 16/10 ´15.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 1502086

13

Fundargerðir Heilbrigðisnefndar frá 1/10 og 26/10 ´15.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 1308650

14

Samkomulag um kaup á Þórukoti á Álftanesi.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir drögum að samkomulagi um kaup á Þórukoti á Álftanesi og lagði fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2015 sem samþykkja þarf samhliða.

Steinþór Einarsson, tók til máls.

Bæjarráð samþykkir samkomulag um kaup á fasteign og landi Þórukots á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka 18 vegna samkomulags um kaup á Þórukoti á Álftanesi.

Viðauki 18

Kaup á fasteigninni Þórukot á Álftanesi kr. 142.520.520

Útgjöldum vegna kaupverðs verður mætt á eftirfarandi hátt.

Tekið nýtt skammtímalán kr. 50.000.000

Hækkun skammtímaskulda kr. 92.520.520

Skammtímaskuldir - breyting kr. 142.520.520

Málsnúmer 1509394

15

Tillaga um breytingu á gjaldskrá matvæla- heilbrigðis og mengunareftirlits 2016

Bæjarstjórn samþykkir tillögu heilbrigðisnefndar um breytingu á gjaldskrá matvæla-, heilbrigðis og mengunareftirlits 2016.

Málsnúmer 1509394

16

Tillaga um breytingu á gjaldskrá fyrir hundahald 2016

Bæjarstjórn samþykkir tillögu heilbrigðisnefndar um breytingu á gjaldskrá hundahalds 2016.

Málsnúmer 1503196

17

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)fyrri umræða

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2016 og 2017 - 2019. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Steinþór Einarsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Um langt skeið hefur legið fyrir að bæta þurfi inniaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur í Garðabæ. Mikil vinna hefur farið fram innan Stjörnunnar ásamt því að Garðabær skipaði starfshóp á síðasta kjörtímabili til að skoða bestu staðsetningu og hvernig slíkt hús ætti að vera.

Tryggja þarf að í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016, verði gert ráð fyrir fjármagni til að hefja byggingu á fjölnota húsi sem rúmast á Ásgarðssvæðinu, ásamt því að huga að fleiri æfingavöllum á svæðinu. Með þessu fjármagni skal tryggt að framkvæmdir við fjölnota hús sem getur hýst knattspyrnuæfingar hefjist sem allra fyrst.

Í framhaldinu verði farið að skoða staðsetningu á öðru framtíðarsvæði Stjörnunnar með frekari uppbyggingu á aðstöðu í huga í ört stækkandi sveitarfélagi.“

Halldór Jörgensson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu

„Björt framtíð gerir það að tillögu sinni að ákvarðanir um knatthús eða fjölnotahús verði lagðar í hendur íbúa Garðabæjar í formi íbúakosningar sem fyrst.“

Greinagerð

Bygging knatthúss eða fjölnotahúss hefur verið ofarlega í umræðunni í bæjarfélaginu og hagsmunaaðilar hafa verið duglegir við að styðja slíka byggingu með tillögum og röksemdum. Reyndar er þetta mál búið að vera í umræðunni í yfir 15 ár. Allt of lengi hefur tekið að draga þetta mál til lyktar og því telur Björt framtíð að ákjósanleg lausn sé að efna til íbúakosningar um málið. Áður en slík kosning getur farið fram þurfa allar upplýsingar að liggja fyrir hvað varðar þörf, byggingarkostnað og rekstrarkostnað slíkrar byggingar auk annarra þátta eins og hækkun skuldahlutfalls sem afleiðingu framkvæmda. Björt Framtíð telur að hagsmunaaðilar eigi rétt á því að fá svör við sínum tillögum og þörfum og að íbúar bæjarins eigi rétt á því að fá að taka afstöðu til þeirra kosta og kostnaðar sem fylgja slíkri byggingu. Kosning ætti að fara fram sem allra fyrst eða í síðasta lagi samhliða forsetakosningum næsta ár.

Nýlega samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að semja reglur á grundvelli 1. mgr. 46. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2010 um að fundir fastanefnda bæjarstjórnar Garðabæjar verði almennt haldnir í heyrandi hljóði og opnir. Í greinagerð með samþykktinni var vísað í lýðræðisstefnu Garðabæjar: „Lýðræði og virkt samráð er einn af hornsteinum stjórnkerfisins í Garðabæ. Bæjarstjórn og stjórnendur Garðabæjar líta svo á að í áliti íbúa á málefnum sveitarfélagsins búi verðmæti sem mikilvægt sé að virkja. Íbúar Garðabæjar eiga að hafa greiðan aðgang að þátttöku í ákvarðanatöku og stefnumótun í því skyni að auka gæði þjónustunnar og efla lífsgæði og samheldni í sveitarfélaginu.“

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.

María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.

Halldór Jörgensson, tók til máls að nýju.

Guðrún Elín Herbertsdóttir tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun. Guðrún Elín lagði fram eftirfarandi bókun.

„Björt framtíð endurtekur hér ársgamla bókun sína frá umræðum um fjárhagsáætlun árið 2015 og hafnar framkvæmdaráætlun við bæjarstjórnarsal að óbreyttu. Hinsvegar erum við reiðubúin til að samþykkja þá breytingu að kaffihúsa- eða veitingarekstur í salnum verði boðin út til að tryggja sem mesta nýtingu og opnunartíma salsins. Þær 90 milljónir sem áætlaðar eru í framkvæmdir við salinn teljum við vera slæma fjárfestingu miðað við önnur aðkallandi verkefni og þá litlu nýtingu sem annars er fyrirhuguð á salnum.“

Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu:

„Björt framtíð leggur til að íbúum Garðabæjar standi til boða ítarlegri flokkun á heimilissorpi. Þessu verði m.a. mætt með fjölgun grenndargáma sem bjóða upp á ítarlegri flokkun á plasti og gleri og einnig að íbúum standi til boða og hafi val að kaupa sér þjónustuna á ítarlegri flokkunartunnum við heimili, annað hvort hjá bæjarfélaginu eða hjá einkaaðila á markaði. Einnig leggur Björt framtíð til að farið verði í sérstakt átak til að fræða og kynna nýja flokkunarmöguleika fyrir íbúum.“

Greinagerð:

Hlutfall heimilissorps í bænum sem endar í svörtu tunnunni og er urðað er allt of hátt. Sérstaklega mælast plastumbúðir þar ofarlega. Mjög margir íbúar hafa sýnt því áhuga að flokka sitt heimilissorp betur en vita ekki hvernig þeir eiga að bera sig að. Þar sem enga flokkunarstöð er að finna í bænum, fáa grenndargáma og stöðin á Dalvegi mun loka fljótlega, er mjög mikilvægt að Garðabær bjóði upp á betri þjónustu í þessum málum. Garðabær á því að bjóða upp á betri og fleiri grenndargáma sem taka við m.a. plasti og gleri og eins á íbúum að standa til boða að fá sér nýja flokkunartunnu sem tekur við fleiri flokkum en bara pappírstunnan. Samkvæmt nýjum úrskurði Samkeppniseftirlitsins eiga íbúar að hafa frelsi hvort þeir kaupi slíkar tunnur af bæjarfélaginu eða beint af einkaaðila. Við hvetjum bæjaryfirvöld að bregðast hratt og vel við og setja þetta ferli strax af stað. Þannig styður bærinn við vistvænan lífstíl sem er algjörlega lífsnauðsynlegt að fleiri tileinki sér. Björt framtíð bendir á að kostnaði við ítarlegri flokkun á heimilissorpi má ekki mæta með auknum sorphirðugjöldum samkvæmt úrskurði Samkeppniseftirlitsins.

Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:

2016, 2017, 2018, 2019

Tekjur: 11.486.644, 11.635.764, 11.805.764, 11.995.764

Gjöld: 10.445.715, 10.496.069, 10.646.787, 10.805.085

Niðurstaða án fjármagnsliða:

1.040.929, 1.139.695, 1.159.977, 1.190.679

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

(715.910), (527.196), (447.863), (381.366)

Rekstrarniðurstaða

325.019, 612.499, 711.114, 809.313



Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2016 og 2017 - 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um íbúakosningu til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um grenndargáma til bæjarráðs.