Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 20/10 ´15.

Málsnúmer 1510036F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (780). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., bréf íþróttafulltrúa um breyttan opnunartíma Álftaneslaugar og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Bæjarráð Garðabæjar samþykkti að stytta afgreiðslutíma sundlaugarinnar á Álftanesi vegna lítillar aðsóknar og kostnaðar við vaktafyrirkomulag. Samfylkingin í Garðabæ telur rétt að unnið verði að markaðssetningu á lauginni til að fjölga gestum. Sundlaugin er vel útbúin og hefur ákveðna sérstöðu á höfuðborgarsvæðinu sem rétt er að vekja athygli á.“

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórna um kaup á fasteignum sjóðsins og óskaði eftir nánari upplýsingum um stöðu málsins.

María Grétarsdóttir ræddi 14. tl., tillögu um breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs varðandi þjónustu við eldri borgara og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Garðabæjar kom fram hjá meirihlutanum að stefnt væri að því að bærinn ræki hjúkrunarheimilið Ísafold aðeins til 31. mars 2016. Fólkið í bænum leggur áherslu á að um opið ferli verði að ræða þannig að hagsmunir íbúa og bæjarbúa verði tryggðir.“

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 6. tl., bréf íþróttafulltrúa um breyttan opnunartíma og framlagða bókun. Bæjarstjóri ræddi 7. tl., bréf Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórna um kaup á fasteignum sjóðsins og gerði grein fyrir fundi með fulltrúum sjóðsins um málið. Þá ræddi bæjarstjóri 14. tl., tillögu um breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs varðandi þjónustu við eldri borgara og framlagða bókun.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti um stöðuna á vinnumarkaði í september. Sturla gerði nánari grein fyrir stöðunni í Garðabæ. Þá ræddi Sturla 12. tl., bréf SSH um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.