Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 3/11 ´15.

Málsnúmer 1510056F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (780). fundur

Steinþór Einarson, ræddi 7. tl., bréf foreldra á Álftanesi um þörf á leikskólarými fyrir ung börn og 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf foreldra á Álftanesi um þörf á leikskólarými fyrir ung börn og 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Björt framtíð leggur áherslu á að unnið verði á markvissari hátt að því að fjölga byggingu á litlum og ódýrum íbúðum í Garðabæ.“

Greinagerð:
Tillaga sem lögð var fram á þar síðasta bæjarstjórnarfundi um hugmyndasamkeppni um rammaskipulag á Lyngássvæðinu er góð og gild en hún er einnig tímafrek. Margt má gera í millitíðinni. Björt framtíð hvetur bæjaryfirvöld til að taka meðal annars vel í nýlegar umsóknir verktaka sem hafa óskað eftir lóðum til að byggja ódýrar íbúðir. Hefja á samtalið strax við þessa aðila og einnig að bjóða enn fleiri vertökum og byggingarfélögum að borðinu. Við þurfum skýra aðgerðaráætlun um það hvernig og hvenær við ætlum að bjóða upp á raunhæfa húsnæðiskosti fyrir ungt fólk og barnafólk.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun.

Guðrún Elin Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

María Grétarsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 8. tl., bréf Byggingar ehf. um lóðaúthlutun og framkomna tillögu. Þá ræddi bæjarstjóri 1. tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 ? 2019 og vakti athygli á fjárveitingu til framkvæmda við fjölnota íþróttahús samkvæmt samþykktri þriggja ára áætlun 2016-2018.

Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.