Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 27/10 ´15.

Málsnúmer 1510044F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (780). fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., bréf Kvennakórs Garðabæjar um endurnýjun samnings og færði kórnum hamingjuóskir með frábæran árangur á kóramóti á Spáni en kórinn kom heim með gull- og silfurverðlaun.

María Grétarsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í fyrstu umræðu um fjárhagsáætlun Garðabæjar kom fram hjá meirihlutanum að bærinn áætlar ekki fjárframlög til Urriðaholtsskóla á næstu 4 árum umfram rekstrarframlög frá eigendum Urriðaholts. Fram hefur komið að fyrsti áfangi skólans muni kosta um 2,5 milljarða króna. Fólkið í bænum óskar eftir sundurliðun á áætluðum heildarframkvæmdakostnaði við byggingu skólans og búnað fram að áætlaðri opnun hans að hausti 2016. Einnig óskar Fólkið í bænum eftir upplýsingum um hvort metin hafi verið áhrif þessarar fjárfestingar bæjarins á fjárhag sveitarfélagsins í samræmi við 66. grein sveitarstjórnarlaga.“

Þá lagði María fram eftirfarandi tillögu.

„Fólkið í bænum, leggur til að í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016-2019 verði gert ráð fyrir fjármagni til að byggja fjölnota knatthús á Ásgarðssvæðinu samhliða frekari uppbyggingu á svæðinu. Með þessu fjármagni verði tryggt að framkvæmdir við fjölnota knatthús hefjist sem allra fyrst. Í áætlun komi fram heildarkostnaður við byggingu hússins, hvenær hafist verði handa við byggingu þess og hvenær því skuli lokið.“

Greinargerð
Þann 16. janúar 2014 samþykkti bæjarstjórn að skipaður yrði starfshópur undir forystu bæjarstjóra til undirbúnings byggingar fjölnota knatthúss í Garðabæ. Í greinargerð kom fram að verkefni starfshópsins væri að koma fram með tillögu um hvar byggt skuli fjölnota knatthús, af hvaða gerð og stærð og hvenær. Við ákvörðun um fjárfestingu vegna slíkrar framkvæmdar væri rétt að hafa í huga að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga. Við gerð slíks mats skyldi tekið tillit til annarra framkvæmda á vegum bæjarfélagsins og mat lagt á hvenær hægt væri að hefja framkvæmdir. Jafnframt er lögð áhersla á mikilvægi þess að forsvarsmenn bæjarfélagsins eigi samvinnu við foreldra og forsvarsmenn Stjörnunnar og er vísað í því efni til ályktunar félagsins frá október sl.

Þá María ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og óskaði eftir nánari upplýsingum um hvort samhliða fjölgun íbúða væri verið að auka byggingarmagn.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs. Þá ræddi Sigurður 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og svaraði fyrirspurn.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um fjölnota íþróttahús til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.