14. fundur
14. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.10.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1507169
01
Gildistaka svæðisskipulags og innleiðing í aðalskipulag
Hrafnkell Proppe afhendir eintök af svsk
Hrafn Proppé svæðisskipulagsstjóri gerði grein fyrir gildistöku svæðisskipulags höfðuðborgarsvæðisins og afhenti nefndarmönnum eintök af svæðisskipulaginu "Höfuðborgarsvæðið 2040".
Málsnúmer 1302203
02
Kirkjubrú 1, dsk
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 í þriðja sinn að lokinni kynningu. Skipulagsstjóri kynnti frumhugmyndir um mótun byggðar í landi Brekku, Kirkjubrúar og í Kumlamýri. Samkvæmt tillögunni er m.a. leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum nýrrar byggðar á byggð við Tjarnarbrekku.
Skipulagsnefnd hafnar tillögu sem kynnt hefur verið og beinir því til tækni-og umhverfissviðs að leggja fram tillögu að deiliskipulagi svæðisins alls, þ.e. frá Brekku að Kumlamýri/Grandastykki. Gera þarf breytingu á gildandi deiliskipulagi Miðbæjarsvæðis Álftaness og fella út svæðið sunnan Suðurnesvegar sem verði hluti af nýju deiliskipulagi.
Málsnúmer 1503338
03
Búðarflöt 2-4,Álftanesi, byggingarleyfi f einbýlishús
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þriggja einbýlishúsalóða við Búðarflöt að lokinni grenndarkynningu. 5 athugasemdabréf hafa borist.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1509073
04
Lyngás 1, breyting á dsk Ása og Grunda
Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 1. Tillaga gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað úr 119 í 138 eða um 19. Með vísan í bókun skipulagsnefnar frá 8.október samþykkir skipulagsnefnd kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43 gr. og 41.gr. Skipulagslaga. Fallið verði frá forkynningu í samræmi við 3.mgr. 40.gr. sömu laga þar sem að allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.
Málsnúmer 1405177
05
Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar-Holtsbúðar sem var í kynningu frá 7.apríl til 19.maí. Lagt fram minnisblað verkfræðistofunnar Eflu um tillögu að breytingu á deiliskipulags tillögunni. Sú breytingartillaga gerir ráð fyrir því að aðkoma að Holtsbúð 87 (fyrrum hjúkrunarheimili) frá Karlabraut færist neðar og að opið svæði milli Holtsbúðar og húsa í Lundum skerðist ekki. Breytingartillagan leitast við að koma til móts við athugasemdir.Niðurstaða Eflu er sú að færsla aðkomu hafi ekki neikvæð áhrif. Skipulagsnefnd leggur því til að aðkomunni verði breytt og verði útfærð eins og lagt er til.
Í athugasemd er því haldið fram að lóðin Holtsbúð 87 geti ekki verið skilgreind fyrir samfélagsþjónustu þar sem að landnotkun samkvæmt aðalskipulagi sé íbúðarsvæði. Skipulagsnefnd lítur svo á umrædda skilgreiningu fyrir samfélagsþjónustu að þar verði eingöngu um nærþjónustu að ræða sem geti fallið að íbúðarbyggð og valdi ekki óþægindum vegna lyktar, hávaða eða óþrifnaðar né dragi að sér óeðlilega mikla umferð. Breyting á aðkomu að byggingunni sem verður nú frá Karlabraut í stað Holtsbúðar miðar að því að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar sem hlýst af starfseminni á íbúðarbyggð. Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi ákvæði bætist við í kafla 3 í skilmálum þar sem fjallað er um lóðina: „Á lóðinni verði eingöngu starfsemi undir samfélagsþjónustu sem getur samræmst íbúðabyggð og valdi ekki óþægindum vegna lyktar, hávaða eða óþrifnaðar eða skapi óeðliega mikla umferð um húsagötur.“
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með ofangreindum breytingum í samræmivið 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1508471
06
Markarflöt 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn um það hvort að ákvæði um hámarkslengd bílageymslu eigi við miðað við framlagða breytingartillögu. Gert er ráð fyrir að bílageymsla sem er á neðri hæð framlengist í átt að götu. Skipulagsnefnd telur að rök megi færa fyrir því að ákvæði um hámarkslengd bílageymslu eigi síður við þegar svo háttar. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata og vísar henni til grenndarkynningar. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tímabil grenndarkynningar ef samþykki þeirra sem hún nær til liggur fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 7, 8, 10 og 11.
Málsnúmer 1510202
07
Bæjargata 1-9 - Umsókn um dsk breytingu
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulegt frávik frá deiliskipulagi í samræmi við 3.mgr.43.gr.Skipulags-og byggingarlaga og gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi fyrir húsinu með umræddu fráviki.
Málsnúmer 1510158
08
Dsk breyting Brekkugata 1-3, norðursvæði Urriðaholt
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts 2.áfanga sem gerir ráð fyrir því að fjölga íbúðum í fjölbýlishúsi Brekkugötu 1-3 úr 22 í 28. Færð eru ýmis tök fyrir ástæðu þess að lóðarhafi óskar eftir breytingunni. Deiliskipulagið hlaut staðfestingu á þessu ári.
Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillöguna. Óskað er eftir því að Urriðaholt geri grein fyrir því hvort fyrirtækið telji að von sé á fleiri óskum um fjölgun íbúða innan deiliskipulagssvæðisins sem fyrir skömmu hlaut staðfestingu.
Málsnúmer 1510204
09
Brekkugata/Mosagata Urriðaholt norður 2 - dsk breyting
Málinu frestað þar til fyrir liggur niðurstaða um hugsanlegar frekari breytingar hins nýsamþykkta deiliskipulags Norðurhluta Urriðaholts 2.áfanga.
Málsnúmer 1509161
10
Lóð undir sjálfsafgreiðslustöð í Hnoðraholti.
Málinu vísað til gerðar aðalskipulags þar sem móta þyrfti heildarstefnu um bensínstöðvar og staðsetningar þeirra.
Lúðvík Steinarson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1506306
11
Búðarflöt 1, bílageymsla. Byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bifreiðargeymslu að lokinni grenndarkynningu. Eitt athugasemdarbréf hefur borist. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.