Gildistaka svæðisskipulags og innleiðing í aðalskipulag
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Hrafnkell Proppe afhendir eintök af svsk
Hrafn Proppé svæðisskipulagsstjóri gerði grein fyrir gildistöku svæðisskipulags höfðuðborgarsvæðisins og afhenti nefndarmönnum eintök af svæðisskipulaginu "Höfuðborgarsvæðið 2040".
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Erindi svæðisskipulagsstjóra lagt fram þar sem fram kemur að Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" hafi tekið gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 14.júlí sl. Jafnframt fellur úr gildi Svæðisskipulag Höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 sem staðfest var árið 2002. Skipulagsnefnd vísar erindinu til skipulagsstjóra og aðalskipulagsráðgjafa enda skal gæta þess að innra samræmi sé milli gildandi svæðisskipulags og aðalskipulags sem nú er í vinnslu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
29. (1697). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari meðferðar í skipulagsnefnd í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.