Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Brekkugötu 1-3.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Brekkugötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 22 í 25 eða um 3.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 3 úr 22 í 25.
Tillagan var í kynningu frá 2.maí til 13.júní. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það.
Gjaldið er greitt við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (789). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 22 í 25. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (1726). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 22 í 25. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 5 úr 22 í 27. Þá yrðu 5 íbúðir á jarðhæð.
Skipulagsnefnd leggur til að fjölgað verði um 3 íbúðir gegn því skilyrði að 4 íbúðir verði á jarðhæð en 7 á öðrum hæðum.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar með ofnagreindri breytingu í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
18. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2.áfanga. Frestað þar sem að aðrir lóðarhafar fjölbýlishúsa á skipulagssvæðinu hafa óskað eftir sambærilegum breytingum.
Baldur Ó Svavarsson vék að fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts 2.áfanga sem gerir ráð fyrir því að fjölga íbúðum í fjölbýlishúsi Brekkugötu 1-3 úr 22 í 28. Færð eru ýmis tök fyrir ástæðu þess að lóðarhafi óskar eftir breytingunni. Deiliskipulagið hlaut staðfestingu á þessu ári.
Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillöguna. Óskað er eftir því að Urriðaholt geri grein fyrir því hvort fyrirtækið telji að von sé á fleiri óskum um fjölgun íbúða innan deiliskipulagssvæðisins sem fyrir skömmu hlaut staðfestingu.