18. fundur
18. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.12.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lagðar fram kynningar og fundargerðir íbúafunda vegna stefnumótunar aðalskipulagsins. Íbúafundir voru haldnir 25.nóvember í Álftanesskóla, 26.nóvember í Flataskóla og 1.desember í Flataskóla. Alls sóttu um 200 manns fundina. Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa til þessa vegna aðalskipulags í gegnum heimasíðu Garðabæjar. Fundarmenn sammála um að virkja þyrfti ungt fólk til þáttöku í stefnumótunarferlinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1511035
02
Búðarflöt 3 Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að viðbyggingu við íbúðarhúsið að Búðarflöt 3. Um er að ræða sólskála sem snýr í suður.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn í þegar byggðu hverfi án deiliskipulags. Grenndarkynna skal eigendum Búðarflatar 1 og 2.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506306
03
Búðarflöt 1, bílageymsla. Byggingarleyfi
Lögð fram að nýju tillaga að bifreiðargeymslu að lokinni grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd leggur til að bifreiðargeymslan með geymslurými verði ekki breiðari en bílskýlið sem byggingarleyfi var veitt fyrir eða 8,6 m í stað 9,3 m.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt með þeirri breytingu sem nefndin leggur til í samræmi við 1. og 2. mgr. 44.gr. Skipualagslaga.
Baldur Ó Svavarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510338
04
Hegranes 32 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram breytt tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna fyrirhugaðra breytinga á íbúðarhúsinu að Hegranesi 32. Samþykki nágranna fyrir stækkun byggingarreits til vesturs og fyrir heitan pott utan byggingarreits liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deilskipulags í samræmi við 2.mgr. 43.gr.Skipulagslaga. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar er samþykki nágranna liggur fyrir sbr. 3.mgr. 44.gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1409107
05
Langalína 18/Nýhöfn 2 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að lokað verði fyrir umferð í suðurenda götu austan Löngulínu 18 og að gert verði ráð fyrir bílastæðum framan við bílageymslur.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands sbr 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum að Nýhöfn 2.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512103
06
Urriðaholt, heildaryfirlit yfir deiliskipulag.
Lagt fram heildaryfirlit um breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Urriðaholti.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510158
07
Dsk breyting Brekkugata 1-3, norðursvæði Urriðaholt
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2.áfanga. Frestað þar sem að aðrir lóðarhafar fjölbýlishúsa á skipulagssvæðinu hafa óskað eftir sambærilegum breytingum.
Baldur Ó Svavarsson vék að fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1512212
08
Mávanes 7, fyrirspurn
Í fyrirspurninni er leitað eftir afstöðu skipulagsnefndar vegna tillögu um breikkun á bílageymslu um 2 metra til suður.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á tillöguna þar sem hún mun hafa í för með að bil milli byggingarreita lóðanna nr. 5 og 7 við Mávanes verður 7,15 metrar í stað 9,15 metrar. Skipulagsnefnd telur að mikilvægt sé að tryggja að opið svæði milli húsa sé rúmt eins og gert er ráð fyrir samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Þá bendir skipulagsnefnd á að frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að "húseigendur byrgi sem minnst sýn hver fyrir öðrum" eins og fram kemur í þinglýstum afsölum lóða á Arnarnesi. Við samþykkt á nýju deiliskipulagi fyrir Arnarnes var það haft að leiðarljósi að viðhalda byggðamynstri hverfisins.