Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 7.

Málsnúmer 1512212

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

49. (1717). fundur

Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 7.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

18. fundur

Í fyrirspurninni er leitað eftir afstöðu skipulagsnefndar vegna tillögu um breikkun á bílageymslu um 2 metra til suður.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á tillöguna þar sem hún mun hafa í för með að bil milli byggingarreita lóðanna nr. 5 og 7 við Mávanes verður 7,15 metrar í stað 9,15 metrar. Skipulagsnefnd telur að mikilvægt sé að tryggja að opið svæði milli húsa sé rúmt eins og gert er ráð fyrir samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Þá bendir skipulagsnefnd á að frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að "húseigendur byrgi sem minnst sýn hver fyrir öðrum" eins og fram kemur í þinglýstum afsölum lóða á Arnarnesi. Við samþykkt á nýju deiliskipulagi fyrir Arnarnes var það haft að leiðarljósi að viðhalda byggðamynstri hverfisins.

Fylgiskjöl