Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar við Hegranes 32.

Málsnúmer 1510338

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

8. (1725). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Hegranes 32. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust og skoðast hún því samþykkt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (784). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Hegranes 32, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

04

49. (1717). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Hegranes 32, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

18. fundur

Lögð fram breytt tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna fyrirhugaðra breytinga á íbúðarhúsinu að Hegranesi 32. Samþykki nágranna fyrir stækkun byggingarreits til vesturs og fyrir heitan pott utan byggingarreits liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deilskipulags í samræmi við 2.mgr. 43.gr.Skipulagslaga. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar er samþykki nágranna liggur fyrir sbr. 3.mgr. 44.gr. sömu laga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

17. fundur

Afgreiðslu málsins frestað.

Bæjarráð Garðabæjar

07

43. (1711). fundur

Afgreiðslu frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

15. fundur

Lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir gufubað og þaksskyggni sunnan hússins og vegna skyggnis meðfram austurhlið hússins.
Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt gildandi deiliskipulagi er skulu allir byggingarhlutar vera innan byggingarreits sem og heitir pottar.
Með vísan í gildandi deiliskipulag er tillögunni hafnað.