8. (1725). fundur
8. (1725). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
01.03.2016
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Framkvæmdir og uppbygging í miðbæ 2016
Fundinn sátu undir þessum dagskrárlið sem sérstakir gestir: Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, Guðrún Elín Herbertsdóttir, bæjarfulltrúi, Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi, Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúi og Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi.
Ingvi Jónasson, gerði grein fyrir samningum við væntanlega rekstraraðila að Garðatorgi 4 og sagði frá vinnu við hönnun og undirbúning framkvæmda við Garðatorg 6.
Umræða var um málið.
02
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 43
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar 10 íbúða fjölbýlishúss að Holtsvegi 43.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu á Holtsvegi 2-6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 2-6 og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um stækkun á húsi við Garðatorg 2.
Lögð fram.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markarflöt 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við einbýlishúsið að Markarflöt 4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um skiptingu á lóð við Eyvindarholt 5.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skiptingu lóðar við Eyvindarholt 5, sbr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Langalínu 18/Nýhöfn 2
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18/Nýhöfn 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Búðarflöt 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna mannvirkis við Búðarflöt 3 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, sbr. heimild í 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar við Hegranes 32.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Hegranes 32. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
10
Bréf Lánasjóðs sveitarfélagaum aðalfund 2016, dags. 22.02.16.
11
Bréf Marínar Ásmundsdóttur varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu, dags. 18.02.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
12
Bréf styrktarsjóðs EBÍ varðandi umsókn um styrki á árinu 2016, dags. 22.02.16.
13
Bréf Norræna félagsins varðandi Nordjobb sumarstörf 2016, dags. 19.02.16.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
14
Bréf Lex lögmanna varðandi landréttindi á Arnarnesi, dags. 10.02.16.
Bæjarráð vísar til fyrri samþykkta um sama mál og felur Andra Árnasyni, hrl., að svara bréfinu fyrir hönd bæjarins.
Fylgiskjöl
15
Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um málþing varðandi jafnrétti í sveitarfélögum.
16
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi stóra leikskóladaginn, dags. 22.02.16.
Bæjarráð þakkar boð um þátttöku Garðabæjar í Stóra leikskóladeginum í Reykjavík sem haldinn verður föstudaginn 27. maí 2016.
Fylgiskjöl
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 296. mál., dags. 22.02.16.
18
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi, 150. mál., dags. 22.02.16.
19
Uppbygging á búsetukjarna við Unnargrund fyrir fatlað fólk
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Sinnum ehf og Ás- styrktarfélag um samstarf vegna uppbyggingar á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að leita samninga við Ás- styrktarfélag um byggingu og rekstur búsetukjarna fyrir fatlað fólk á grundvelli áralangrar reynslu og farsæls starfs félagsins af sambærilegri starfsemi í nágrannasveitarfélögunum.