Búðarflöt 3 - byggingarleyfi viðbygging.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (1726). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar sólskála við einbýlishúsið við Búðarflöt 3.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (788). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna mannvirkis við Búðarflöt 3 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, sbr. heimild í 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
04
8. (1725). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna mannvirkis við Búðarflöt 3 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, sbr. heimild í 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Byggingarleyfisumsókn lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
1. (784). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við íbúðarhúsið við Búðarflöt 3.
Bæjarráð Garðabæjar
07
49. (1717). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við íbúðarhúsið við Búðarflöt 3.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
18. fundur
Lögð fram tillaga að viðbyggingu við íbúðarhúsið að Búðarflöt 3. Um er að ræða sólskála sem snýr í suður.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn í þegar byggðu hverfi án deiliskipulags. Grenndarkynna skal eigendum Búðarflatar 1 og 2.