5. (788). fundur
5. (788). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
03.03.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. febrúar 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/2 ´16.
Steinþór Einarsson ræddi 6. tl., hugmyndir að hönnun fjölnotasalar fyrir bæjarstjórn og 14. tl., minnisblað upplýsingastjóra um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum. Steinþór ræddi sérstaklega hugmyndir um að útbúa Garðabæjarapp
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 14. tl., minnisblað upplýsingastjóra um notkun Garðabæjar á samfélagsmiðlum og kynnti nánar hugmyndir varðandi Garðabæjarapp.
Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.
1.13 - 1510181 - Bréf SSH um tillögu samráðshóps um breytingu á opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12.02.16.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu samráðshóps SSH um breytingar á pöntunar- og opnunartíma þjónustuvers vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/3 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ og 11. tl., bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu.
María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ. Þá ræddi María 10. tl., bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um aðalfund og lagði fram svohljóðandi bókun:
„Lánasjóður sveitarfélaga starfar samkvæmt hlutafélagalögum og sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Ekki er minnst á kjörnefnd í samþykktum sjóðsins en stjórn lánasjóðsins kýs kjörnefnd og er hlutverk hennar að auglýsa eftir framboðum og setja tímafresti, fara yfir framboð sem berast til stjórnar og stilla upp tillögu að stjórn og varastjórn fyrir aðal- eða hluthafafund. Á síðasta aðalfundi lánasjóðsins þann 17. apríl sl. var reynslumestu frambjóðendum á fjármálamarkaði við kjör til aðalstjórnar sjóðsins hafnað. Fram kom í máli formanns kjörnefndar í þessu sambandi að taka þyrfti tillit til búsetu og flokkslína við val á stjórnarmönnum. Í ljósi niðurstöðu uppstillingar og kjörs til aðalstjórnar á síðasta ári getur auglýsing eftir framboðum til stjórnar lánasjóðsins ekki annað en hljómað hjákátlega.“
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ og 11. tl., bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu. Þá ræddi Áslaug Hulda 15. tl., málþing um jafnrétti í sveitarfélögum og notaði tækifærið til óskaði Stjörnustúlkum til hamingju með frabæran sigur í bikarkeppni HSÍ.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ Garðabæjar
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl. framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
2.3 - 1602295 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu á Holtsvegi 2-6.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 2-6 og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
2.5 - 1508006 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markarflöt 4.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við einbýlishúsið að Markarflöt 4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.6 - 1602290 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um skiptingu á lóð við Eyvindarholt 5.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um skiptingu lóðar við Eyvindarholt 5, sbr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.8 - 1511035 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Búðarflöt 3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna mannvirkis við Búðarflöt 3 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir, sbr. heimild í 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 9/12 ´15.
Sturla Þorsteinsson kvaddi sér hljóðs og skýrði ástæður þess hversu seint fundargerðin berst á dagskrá bæjarstjórnar.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 6/2 ´16.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi stöðu vinnu við nýtt aðalskipulag.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál og gerði grein fyrir helstu álitamálum og áherslum sem voru til umræðu á vinnufundi skipulagsnefndar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi stöðu vinnu við nýtt aðalskipulag.
María Grétarsdóttir, ræddi stöðu vinnu við nýtt aðalskipulag.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi stöðu vinnu við nýtt aðalskipulag.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 25/2 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., Lyngás 1, breytingu á deiliskipulagi. Þá ræddi Sigurður deiliskipulag Vífilsstaðavegar sem nú er í forkynningu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og í því sambandi fjallaði bæjarstjóri um tillögur og viðræður við Vegagerðina um framkvæmdir við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.
Steinþór Einarsson, ræddi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og tillögur um framkvæmdir við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnafjarðarvegar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls a nýju.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 29/2 ´16.
Kristinn Guðlaugsson, ræddi 4. tl., drög að frumvarpi til breytinga á grunnskólalögum og fjallaði í því sambandi um hugmynd að gerð skóladagatals til lengri tíma en eins skólaárs.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál. Þá ræddi Sigríður Hulda 5. tl., verkferla grunnskóla vegna samskiptavanda meðal nemenda.
Halldór Jörgensson, ræddi 5. tl., verkferla grunnskóla vegna samskiptavanda meðal nemenda.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi umferðarmál á skólasvæði við Ásgarð á álagstímum.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 25/2 ´16.
Kristinn Guðlaugsson, ræddi 2. tl., landsmót skólahljómsveita sem fyrirhugað er í Garðabæ í ágústmánuði.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19/2 ´16.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., ársreikning 2015.
Fundargerðin lögð fram.
10
Þróunarsjóður leikskóla
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðun reglna fyrir Þróunarsjóð leikskóla.