Fundargerð skipulagsnefndar frá 25/2 ´16.
Málsnúmer 1602040F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (788). fundur
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., Lyngás 1, breytingu á deiliskipulagi. Þá ræddi Sigurður deiliskipulag Vífilsstaðavegar sem nú er í forkynningu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og í því sambandi fjallaði bæjarstjóri um tillögur og viðræður við Vegagerðina um framkvæmdir við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.
Steinþór Einarsson, ræddi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og tillögur um framkvæmdir við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnafjarðarvegar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls a nýju.
Fundargerðin lögð fram.