Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 1/3 ´16.

Málsnúmer 1602043F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (788). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ og 11. tl., bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu.

María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ. Þá ræddi María 10. tl., bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um aðalfund og lagði fram svohljóðandi bókun:

„Lánasjóður sveitarfélaga starfar samkvæmt hlutafélagalögum og sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Ekki er minnst á kjörnefnd í samþykktum sjóðsins en stjórn lánasjóðsins kýs kjörnefnd og er hlutverk hennar að auglýsa eftir framboðum og setja tímafresti, fara yfir framboð sem berast til stjórnar og stilla upp tillögu að stjórn og varastjórn fyrir aðal- eða hluthafafund. Á síðasta aðalfundi lánasjóðsins þann 17. apríl sl. var reynslumestu frambjóðendum á fjármálamarkaði við kjör til aðalstjórnar sjóðsins hafnað. Fram kom í máli formanns kjörnefndar í þessu sambandi að taka þyrfti tillit til búsetu og flokkslína við val á stjórnarmönnum. Í ljósi niðurstöðu uppstillingar og kjörs til aðalstjórnar á síðasta ári getur auglýsing eftir framboðum til stjórnar lánasjóðsins ekki annað en hljómað hjákátlega.“

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ og 11. tl., bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi bréf MÁ varðandi umsókn um lóð fyrir garðplöntusölu. Þá ræddi Áslaug Hulda 15. tl., málþing um jafnrétti í sveitarfélögum og notaði tækifærið til óskaði Stjörnustúlkum til hamingju með frabæran sigur í bikarkeppni HSÍ.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ Garðabæjar

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl. framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ Garðabæjar.

Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.