Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 29/2 ´16.
Málsnúmer 1602034F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (788). fundur
Kristinn Guðlaugsson, ræddi 4. tl., drög að frumvarpi til breytinga á grunnskólalögum og fjallaði í því sambandi um hugmynd að gerð skóladagatals til lengri tíma en eins skólaárs.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál. Þá ræddi Sigríður Hulda 5. tl., verkferla grunnskóla vegna samskiptavanda meðal nemenda.
Halldór Jörgensson, ræddi 5. tl., verkferla grunnskóla vegna samskiptavanda meðal nemenda.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi umferðarmál á skólasvæði við Ásgarð á álagstímum.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.