Beint í efni

Garðatorg 2, fyrirspurn um stækkun.

Málsnúmer 1602361

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (791). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um víkja frá ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um málsmeðferð vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. sömu greinar, við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar fjölbýlishússins við Garðatorg 2 sem nemur 20 fermetrum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

15. (1732). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um víkja frá ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um málsmeðferð vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. sömu greinar, við útgáfu á byggingarleyfi vegna stækkunar fjölbýlishússins við Garðatorg 2 sem nemur 20 fermetrum.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn um stækkun 7 hæðar hússins um 20 m2. Lagt fram minnisblað frá verktaka byggingarinnar þar sem fram kemur að breytingin er til bóta fyrir bygginguna.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að vikið verði frá ákvæði 2.mgr.43.gr. við veitingu byggingarleyfis þar sem að um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varað landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn smb. 3.mgr. sömu greinar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

8. (1725). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram fyrirspurn um breytingar á húsinu að Garðatorgi 2 sem er í byggingu. Spurt er hvort heimilt verði að setja stiga-og lyftuhús ofan á bygginguna. Svar: Ekki verður heimiluð hækkun á hámarkshæð hússins. Spurt er hvort heimilað verði að byggja 20 fermetra um fram leyfilegt byggingarmagn vegna viðbyggingar út á þaksvalir á 7.hæð. Svar: Ekki verður heimiluð aukning byggingarmagns. Spurt er hvort hægt sé að sameina tvær íbúðir á 8.hæð í eina. Svar: Það kallar ekki á deiliskipulagsbreytingu en mælt er með því að þeirri íbúð fylgi 2 bílastæði í kjallara hússins þar sem líklegt má telja að í framtíðinni verði farið fram á íbúðinni verði skipt upp í tvær.