Beint í efni

Kynning á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi og svæði við Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut.

Málsnúmer 1602462

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. (1729). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi. Þráinn gerði grein fyrir hönnun á yfirborðsfrágangi á Garðatorgi ásamt frágangi við Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut. Þá sýndi Þráinn einnig uppdrátt með hugmyndum að nýju skipulagi bæjargarðs þar sem gert er ráð fyrir boltavöllum með gervigrasi og strandblakvelli.

Undir þessum dagskrárlið sátu fund bæjarráðs, Baldur Ó Svavarsson, Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúar og Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (1725). fundur

Fundinn sátu undir þessum dagskrárlið sem sérstakir gestir: Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa, Guðrún Elín Herbertsdóttir, bæjarfulltrúi, Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi, Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúi og Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi.

Ingvi Jónasson, gerði grein fyrir samningum við væntanlega rekstraraðila að Garðatorgi 4 og sagði frá vinnu við hönnun og undirbúning framkvæmda við Garðatorg 6.

Umræða var um málið.