Beint í efni

Búðarflöt 1, bílageymsla. Byggingarleyfi

Málsnúmer 1506306

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (784). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna byggingar bifreiðargeymslu við Búðarflöt 1, en með því skilyrði að breidd hennar verði ekki meiri en 8,6 m.

Bæjarráð Garðabæjar

02

49. (1717). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna byggingar bifreiðargeymslu við Búðarflöt 1, en með því skilyrði að breidd hennar verði ekki meiri en 8,6 m.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

18. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að bifreiðargeymslu að lokinni grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd leggur til að bifreiðargeymslan með geymslurými verði ekki breiðari en bílskýlið sem byggingarleyfi var veitt fyrir eða 8,6 m í stað 9,3 m.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt með þeirri breytingu sem nefndin leggur til í samræmi við 1. og 2. mgr. 44.gr. Skipualagslaga.
Baldur Ó Svavarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

15. fundur

Lögð fram

Lögð fram tillaga að teikningum af bílageymslu í norðausturhorni lóðar að lokinni grennarkynningu. Lóðarhafar að aðliggjandi lóð, Lambhaga nr 8 hafa sent inn athugasemd við teikninguna. Telja þau að byggingin þrengi að þeirra lóð, skyggi á kvöldsól og útsýni til vesturs.
Forsaga málsins er sú að lóðarhafa var veitt byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi sínu árið 2008 og var leyfi fyrir bílskýli á þessum sama stað hluti af því. Framkvæmdum er lokið við aðra þætti byggingarleyfisins og er það byggingarleyfi því enn í gildi. Bílskýlið var af sama umfangi og bílageymslan og hefur því svipuð grenndaráhrif. Lóðarhafi hefur lýst því yfir að fáist ekki leyfi fyrir bílageymslu muni hann byggja bílskýlið í samræmi við veitt leyfi sem enn er í gildi.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

14. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bifreiðargeymslu að lokinni grenndarkynningu. Eitt athugasemdarbréf hefur borist. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Lögð fram fyrrirspurn um tillögu að staðsetningu bílageymslu í norðausturhorni lóðarinnar Búðarflöt 1. Fyrir um 8 árum var tillaga að bílskýli á sama stað grenndarkynnt en ekkert varð úr framkvæmdum. Skipulagsnefnd telur að betur fari á því að staðsetja bílageymslu um 1 metra frá lóðarmörkum þar sem það sé meira í samræmi við byggðarmynstur hverfisins. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu þarf að sækja um byggingarleyfi sem hægt verður að vísa í grenndarkynningu.