Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norður 2, Brekkugata/Mosagata.

Málsnúmer 1510204

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

11. (1728). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna færslu á legu Mosagötu o.fl. verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast hún því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (782). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

18. (782). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna tilfærslu á gatnamótum Brekkugötu og Mosagötu og brottfalls einbýlishúsalóðar við Brekkugötu 6.

Bæjarráð Garðabæjar

05

46. (1714). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna tilfærslu á gatnamótum Brekkugötu og Mosagötu og brottfalls einbýlishúsalóðar við Brekkugötu 6.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

17. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu á nýsamþykktu deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 2.áfanga.sem gerir ráð fyrir tilfærslu á gatnamótum Brekkugötu og Mosagötu. Einnig að ein einbýlishúsalóð, Brekkugata nr. 6 er felld burt.
Skipulagsnefnd heimilar kynningunni breytingartillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43 gr. og 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Málinu frestað þar til fyrir liggur niðurstaða um hugsanlegar frekari breytingar hins nýsamþykkta deiliskipulags Norðurhluta Urriðaholts 2.áfanga.