Niðurstöður í hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (1753). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður dómnefndar gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar í samkeppni sem haldin var í samstarfi með Hönnunarmiðstöð Íslands um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Vinningstillagan kom frá Teiknistofunni Tröð og var unnin af Sigríði Magnúsdóttur, arkitekt FAÍ, Hans Olav Andersen, arkitekt FAÍ, Magnúsi Andersen, ljósmyndara og Nínu Solveigu Andersen.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við vinningshafa varðandi gerð samninga um útfærslu, kynningu o.fl.
Bæjarráð Garðabæjar
02
49. (1717). fundur
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd samkvæmt tilnefningu Hönnunarmiðstöðvar Íslands, vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Guðni Valberg arkitekt AÍ, Trípólí arkitektar.
Hildigunnur Gunnarsdóttir grafískur hönnuður FÍT.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
19. (783). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Tilnefndir af Garðabæ
Sigríður Hulda Jónsdóttir, Steinási 8, forseti bæjarstjórnar sem verður formaður
Harpa Þórsdóttir, Þórsgötu 18a, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
Hringur Hafsteinsson, Holtsbúð 97.
Bæjarráð Garðabæjar
04
48. (1716). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar að tilnefna þrjá aðila sem fulltrúa í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Hönnunarmiðstöð Íslands, mun tilnefna tvo fulltrúa í dómnefndina.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
41. (1709). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu að lýsingu, sem unnin er í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, um hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.