48. (1716). fundur
48. (1716). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.12.2015
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1512097
01
Umsögn um umsókn IKEA um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1512099
02
1001 dagur í lífi barns - áskorun til sveitarstjórnarmanna
Lögð fram áskorun til sveitarstjórnarmanna um að leggja áherslu á að tryggja öllum börnum heilbrigt upphaf í lífinu með því að huga að markvissu uppeldi á fyrstu 1001 degi í lífi hvers einstaklings eða frá getnaði til tveggja ára aldurs.
Bæjarráð vísar áskoruninni til umfjöllunar í viðeigandi fastanefndum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512104
03
Bréf íbúa við Móaflöt varðandi athugasemdir við snjómokstur, ódags.
Í bréfinu eru gerðar athugasemdir við að snjóruðningur af götum er ýtt fyrir innkeyrslur sem veldur íbúum og sérstaklega eldri íbúum miklun erfiðleikum við að komast frá húsum sínum.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið bréfritara og felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512105
04
Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi Evrópumót kvennalandsliða á Urriðavelli sumarið 2016, dags. 30.11.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til kynningar í ÍTG.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512109
05
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um skráningu og mat fasteigna, dags. 08.12.15.
Málsnúmer 1510283
06
Tilnefning á þremur fulltrúum í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar að tilnefna þrjá aðila sem fulltrúa í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Hönnunarmiðstöð Íslands, mun tilnefna tvo fulltrúa í dómnefndina.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512145
07
Tillaga um að auglýsa til úthlutunar lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóð við Arnarnesvog.
Í auglýsingunni skal koma fram að lóðarverð vegna byggingarréttar- og gatnagerðargjalds skuli nema tvöföldu gatnagerðargjaldi sem er kr. 19.222.000 fyrir 500 m2 hús.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510195
08
Málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum velferðarráðuneytisins um málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
Á fundinum kom fram hjá fulltrúum ráðuneytisins að ríkið hafi ekki fjármuni til að hækka daggjöld hjúkrunarheimila og þá hafnar ríkið að greiða uppsafnaðan umframkostnað enda sé ekki fjárheimild til þess.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að fulltrúum ráðuneytisins hafi verið kynnt að samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 er fjárveiting til rekstrar Ísafoldar til 31. mars 2016.
Á fundinum var samþykkt að hefja undirbúning að gerð samninga um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísafoldar á árinu 2016.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa að stefna íslensku ríkinu fyrir héraðsdóm og krefja ríkið um greiðslu skaðabóta vegna uppsafnaðrar skuldar.
Málsnúmer 1510222
09
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um erindi Kvennakórs Garðabæjar um endurnýjun samnings.
Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn kórsins um endurnýjun samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510221
10
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrk til kammerhópsins Camerarctica vegna tónleika.
Lögð fram til kynningar afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna tónleikahalds.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1305797
11
Lokaskýrsla rannsóknarverkefnis um tengsl heimspeki og kennslu í leik- og grunnskólum Garðabæjar, dags. nóvember 2015.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir forsögu að gerð skýrslunnar og helstu niðurstöðum hennar.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í leikskólanefnd, skólanefnd grunnskóla og ungmennaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512152
12
Samstarfssamningur sveitarfélaga um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja aðild Garðabæjar að samningnum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510164
13
Reglur um hvatapeninga 2016
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja reglur um hvatapeninga árið 2016 þar sem gert er ráð fyrir hækkun á greiðslum úr kr. 27.500 í kr. 30.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512106
14
Tilboð í skammtímalán
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum frá Arion banka og Íslandsbanka í skammtímalántöku að fjárhæð kr. 100.000.000.
Bæjarráð samþykkir tilboð Íslandsbanka vegna skammtímalántöku allt að kr. 100.000.000.
Málsnúmer 1409324
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðauki 20
Fjármálstjóri gerði grein fyrir viðauka 20 við fjárhagsáætlun 2015 sem er tilkominn vegna útgjalda í tengslum við hækkun launa samkvæmt nýgerðum kjarasamningum
Stjórnendur í grunnskóla 14.000.000
Hjúkrunarfræðingar Ísafold 4.000.000
STAG (Starfsmannafélag Garðabæjar) 124.000.000
Félag leikskólakennara 28.000.000
Stjórnendur í leikskólum 14.000.000
Hlíf - verkalýðsfélag 4.000.000
Útgjaldaauka mætt með hækkun útsvars
Staðgreiðsla útsvars 188.000.000
Bæjarráð vísar viðaukanum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1503196
16
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - Gjaldskrár
Lagðar fram eftirfarandi gjaldskrár og reglur til að gilda frá 1. janúar 2016
Gjaldskrá vegna skólamálsverða.
Gjaldskrá leikskóla.
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ.
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Gjaldskrá tómstundaheimila.
Gjaldskrá sundlauga.
Gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar.
Bæjarráð vísar framlögðum gjaldskrám til afgreiðslu bæjarstjórnar.