Beint í efni

Málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.

Málsnúmer 1510195

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (1716). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum velferðarráðuneytisins um málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.

Á fundinum kom fram hjá fulltrúum ráðuneytisins að ríkið hafi ekki fjármuni til að hækka daggjöld hjúkrunarheimila og þá hafnar ríkið að greiða uppsafnaðan umframkostnað enda sé ekki fjárheimild til þess.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að fulltrúum ráðuneytisins hafi verið kynnt að samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 er fjárveiting til rekstrar Ísafoldar til 31. mars 2016.

Á fundinum var samþykkt að hefja undirbúning að gerð samninga um yfirtöku ríkisins á starfsemi Ísafoldar á árinu 2016.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa að stefna íslensku ríkinu fyrir héraðsdóm og krefja ríkið um greiðslu skaðabóta vegna uppsafnaðrar skuldar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

47. (1715). fundur

Lagt fram ofangreint bréf þar sem fram kemur að ráðuneytið hafnar að greiða kröfu Garðabæjar um endurgreiðslu á kostnaði vegna rekstrar hjúkrunarheimilisins Ísafoldar umfram daggjöld sem einhliða eru ákvörðuð af ráðherra.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með ráðuneytinu til að ræða um framhald á starfsemi Ísafoldar.

Fylgiskjöl