19. (783). fundur
19. (783). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
17.12.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Gunnar Valur Gíslason, varaforseti, setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. desember 2015 er lögð fram.[line][line]Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs í tilefni af bókun Fólksins í bænum um vinabæjamót og fjárhagsáætlun.[line][line]María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi bókun um vinabæjamót og fjárhagsáætlun.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 8/12 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., mat á áhrifum byggingar Urriðaholtsskóla og fjölnota íþróttahúss á fjárhag Garðabæjar.
María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 15/12 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., bréf íbúa við Móaflöt varðandi athugasemdir við snjómokstur, 6. tl., tilnefningu fulltrúa í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ og 8. tl., málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., tillögu um að auglýsa til úthlutunar lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog, 8. tl., málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis og 13. tl., reglur um hvatapeninga.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., bréf íbúa við Móaflöt varðandi athugasemdir við snjómokstur, 6. tl., tilnefningu fulltrúa í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 8. tl., málefni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.
2.12 - 1512152 - Samstarfssamningur sveitarfélaga um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða aðild Garðabæjar að samstarfsamningi sveitarfélaga um markaðssamstarf, viðburði og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
2.15 - 1409324 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðauki 20
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2015.
Hækkun launaliða vegna nýrra kjarasamninga.
Stjórnendur í grunnskóla kr. 14.000.000
Hjúkrunarfræðingar Ísafold kr. 4.000.000
STAG (Starfsmannafélag Garðabæjar) kr. 124.000.000
Félag leikskólakennara kr. 28.000.000
Stjórnendur í leikskólum kr. 14.000.000
Hlíf - verkalýðsfélag kr. 4.000.000
Útgjaldaauka mætt með hækkun útsvars
Staðgreiðsla útsvars kr. 188.000.000
Fylgiskjöl
03
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 2/12 ´15.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 4/12 ´15.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 5. tl., verkefni veturinn 2015-2016 og 10. tl., hamingjuóskir til félagsmiðstöðvanna Klakans í Sjálandsskóla og Garðalundar í Garðaskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 9/12 ´15.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 4. tl., kirkjuheimsóknir skóla.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 8/12 ´15.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð umhverfisnefndar Garðabæjar frá 9/12 ´15.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., mengunarmælingar í lækjum og við strandir
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 4/12 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., fjárhags- og starfsáætlun, 3. tl., húsnæðismál og 4. tl., bréf innri endurskoðanda Reykjavíkur.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., húsnæðismál.
Gunnar valur Gíslason, ræddi að nýju 3. tl., húsnæðismál.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð Sorpu frá 14/12 ´15.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 12. tl., úrskurð ÚUA vegna kæru Íslenska gámafélagsins og 3. tl., úrskurð Hæstaréttar í máli Sorpu bs. gegn Samkeppniseftirlitinu.
Fundargerðin lögð fram.
12
Reglur um hvatapeninga árið 2016
Bæjarstjórn samþykkir nýjar reglur um hvatapeninga þar sem lögð er til hækkun á greiðslum úr kr. 27.500 í kr. 30.000 kr.
13
Tilnefning á þremur fulltrúum í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Tilnefndir af Garðabæ
Sigríður Hulda Jónsdóttir, Steinási 8, forseti bæjarstjórnar sem verður formaður
Harpa Þórsdóttir, Þórsgötu 18a, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
Hringur Hafsteinsson, Holtsbúð 97.
14
Brottfall reglna um greiðslur til forráðamanna barna á biðlista eftir leikskóla frá árinu 2015.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti andstöðu við að fella reglurnar úr gildi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs, skýrði nánar ástæðu fyrir brottfalli reglnanna og vísaði í því sambandi til þess að almennt væru engir biðlistar.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG,GEH,HJ,SE) gegn einu (MG) að fella úr gildi reglur um greiðslur til forráðamanna barna á biðlistum eftir leikskóla sem gilt hafa óbreyttar frá árinu 2005.
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 - Gjaldskrár
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð er mótfallin hækkun á gjaldskrám leikskóla og skólamáltíða. Garðabær er þegar með hæstu gjöld sveitarfélaga í þessum flokkum. Við mótmælum einnig þeim vinnubrögðum að leggja hér fram umdeildar gjaldskrárhækkanir korteri fyrir jól. Við hefðum viljað taka þessa umræðu miklu fyrr á árinu til að hafa tíma til að vega og meta tækifæri sem gætu komið í veg fyrir þessa hækkun, eins og hagræðingu í rekstri. Björt framtíð hvetur til þess að rekstur málaflokka bæjarins verði skoðaður með það að markmiði að lækka rekstrarkostnað. Með lækkuðum rekstarkostnaði væri hægt að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki. Það er eitt að fylgja vísitöluhækkunum en annað að bjóða upp á samkeppnishæft verð. Það samræmist engan veginn þeim vilja að laða að fleira barnafólk í bæinn ef hér eru svo hæstu gjöldin á þann hóp. Hvernig væri að setjast frekar niður saman og spyrja okkur að því af hverju gjöldin hjá okkur eru svona há og hvað við getum gert til að lækka þau?“
Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu.
„Björt framtíð leggur til að afgreiðslu á gjaldskrám leikskóla og skólamáltíða verði frestað fram á nýtt ár svo hægt verði að ræða hana frekar.“
Í umræðu um málið tóku eftirfarandi bæjarfulltrúar til máls:
Gunnar Einarsson, María Grétarsdóttir, Steinþór Einarsson, Halldór Jörgensson, Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson.
Tillaga um frestun á afgreiðslu gjaldskráa leikskóla og skólamáltíða er felld með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ). Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ).
gjaldskrá leikskóla er gildir frá 1. janúar 2016. Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum er gilda frá 1. janúar 2016. Fjórir sitja hjá (GEH,HJ,SE,MG)
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gjaldskrá fyrir tómstundaheimili er gildir frá 1. janúar 2016. Fjórir sitja hjá (GEH,HJ,SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ). gjaldskrá vegna skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG,GEH,HJ,SE) gjaldskrá fyrir sundlaugar Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. MG situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með með tíu atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG,GEH,HJ,SE) gjaldskrá fyrir bókasafn Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. MG situr hjá.