Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 25.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1706). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 25. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 25 að lokinni grenndarkynningu. Breytingartillagan nær til lóðarinnar Sunnuflöt 25.
Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingareitur stækkar til suðurs sem nemur 36 m2 (4x9m) og að innan stækkunar verði heimilt að fullnýta reitinn í kjallara en á 13 m2 á 1. hæð.
Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna.
Í samræmi við 2.mgr.43.gr. er tillagan því samþykkt.
Bæjarráð Garðabæjar
03
31. (1699). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits vegna viðbyggingar á lóðinni við Sunnuflöt 25, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Umsóknin skal grenndarkynnt eigendum Sunnuflatar 23, 26, 27, 28, 30 og Markaflatar 24, og 26.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 25. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til suðurs og innan hans verði heimilt að reisa viðbyggingu við kjallara auk 13 m2 við aðalhæð hússins. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Sunnuflatar 23, 26, 27, 28 og 30. Einnig Markarflatar 24 og 26.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu sem felst í því að byggja við einbýlishúsið að sunnanverðu einnar hæðar viðbyggingu sem tengist kjallara hússins. Ofan á viðbyggingu komi svalir sem tengjast stofu.$line$Skipulagsnefnd telur að líklegt sé að nefndin meti tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu. Leggja skal fram góð og greinileg gögn í skipulagsnefnd áður er máli verður vísað áfram.