Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna byggingarleyfisumsóknar við Holtsbúð 91, dags. 13.08.15.

Málsnúmer 1503260

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

31. (1699). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila afgreiðslu umsóknar byggingarleyfis án grenndarkynningar á grundvelli 2. ml. 3. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, þar sem um er að ræða framkvæmd sem varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins eða umsækjanda.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga að Holtsbúð 91 sem er í hverfi án deiliskipulags í gildi. Skipulagsnefnd fellur frá grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga þar sem að leyfisskyld framkvæmd varðar ekki hagsmuni annara en Garðabæjar og umsækjenda.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr 1. Mgr. sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi um breytingar á einbýlishúsinu við Holtsbúð nr. 91. Umsóknin verður grenndarkynnt án svala á norðurhlið hússins sem ná út fyrir byggingarreit samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Holtsbúðar sem nú er í kynningu samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16 (1684). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr 1. mgr sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi um breytingar á einbýlishúsinu við Holtsbúð nr. 91. Umsóknin verður grenndarkynnt án svala á norðurhlið hússins sem ná út fyrir byggingarreit samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Holtsbúðar sem nú er í kynningu samkvæmt 1. mgr 43. gr skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að íbúðarhúsinu að Holtsbúð 91. Þar sem að ekki er gildandi deiliskipulag til staðar á lóðinni er umsókninni vísað til skipulagsnefndar af byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd bendir á að svalir á norðurhlið hússins ná út fyrir byggingarreit og er það ekki í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar sem nú er í kynningarferli. Skipulagsnefnd hafnar því tillögunni vegna svalanna en gerir að öðru leyti ekki athugasemd við tillöguna. Heimilt er skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna án umræddra svala í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga.