Umsókn um styrk vegna þátttöku í kórakeppni
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
33. (1701). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita Kvennakór Garðabæjar styrk að upphæð kr. 200.000 vegna undirbúnings og þátttöku í alþjóðlegri kórakeppni.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Tekið var til afgreiðslu bréf Kvennakórs Garðabæjar, dags. 10. ágúst 2015, um styrk vegna þátttöku í alþjóðlegri kórakeppninni Canta el mar á Spáni þann 21.-25. október 2015 en í keppninni mun kórinn keppa í tveimur flokkum, almennum kvennakórverkum og kirkjuverkum. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar þann 18. ágúst sl. og vísað til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja Kvennakórinn um 200.000 kr. vegna undirbúnings og þátttöku í kórakeppninni.
Bæjarráð Garðabæjar
04
31. (1699). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.