12. (776). fundur
12. (776). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
03.09.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Dagskrá
Málsnúmer 1508023F
01
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 25/8 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 8. tl., bréf Bjartrar framtíðar um móttöku flóttamanna.
Sturla D. Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, ræddi sama mál. Þá ræddi Steinþór 7. tl., bréf Bjartrar framtíðar um tillögur á verklagi við fjárhagsáætlun og kynjaða hagstjórn og 5. tl., minnisblað skóladeildar um skólamat.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., tillögu um lokun á gamla Álftanesvegi við Herjólfsbraut.
Halldór Jörgensson ræddi að nýju 8. tl., tillögu um móttöku flóttamanna og 5. tl., minnisblað skóladeildar um skólamat.
María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., minnisblað skóladeildar um skólamat.
Sigríður Hulda Jóndóttir, ræddi 5. tl., minnisblað skóladeildar um skólamat.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1508028F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 1/9 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl. erindi Stjörnunnar um lækkun fasteignagjalda og notaði tilefnið til að óska meistaraflokki kvenna í knattspyrnu til hamingju með glæsilegan sigur í bikarkeppni KSÍ.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 430.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 2,90% ávöxtunarkröfu sem jafngildir markaðsvirði að fjárhæð kr. 360.187.441.
Bæjarstjórn samþykkir að fara þess á leit að skuldabréfaflokkur með auðkenninu GARD 13 1 og ISIN nr. IS0000022689 verði aukinn um kr. 470.000.000 þ.e. um samsvarandi fjölda eininga en nafnverðseining er kr. 1. Vísað er til heimildar í útgáfusamningi, dags. 8. janúar 2013. Einnig er vísað til útgáfulýsingar dags. 8. janúar 2013. Áður hafa verið gefnar út kr. 1.767.000.000 og verður flokkurinn því að fjárhæð kr. 2.237.000.000 eftir hækkunina. Skuldabréfaflokkur þessi er þegar skráður á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 (2016-208) sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. desember 2014.
Bæjarstjórn samþykkir að við afgreiðslu byggingarleyfis fyrir Urriðaholtsskóla verði fallið frá grenndarkynningu vegna stækkunar byggingarreits, hækkunar hæðarkóta stigahúss um 50 cm og uppbrots á norðurhlið hússins þar sem um óveruleg frávik er að ræða, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar Urriðaholtsskóla við Vörðuveg 1-3.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.
Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1508025F
03
Fundargerð menningar- og safnanefndar Garðabæjar frá 28/8 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1508020F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar frá 25/8 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502027
05
Fundargerð Strætó bs. frá 28/8 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., forsendur fjárhagsáætlunar, 3. tl., niðurstöðu kærunefndar útboðsmála og 4. tl., erindi vegna almenningssamgangna á Álftanesi. Gunnar vék einnig að starfsmannamálum hjá Strætó en erfiðlega gengur að ráða bílstjóra til starfa. Þá ræddi Gunnar akstur fatlaðra skólabarna og framtíðarfyrirkomulag á ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501125
06
Fundargerð Sorpu frá 21/8 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 7. tl., rekstur endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503138
07
Fundargerð SSH frá 24/8 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlanir 2016 og spurði um stöðu úttektar á byggðasamlögum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál og gerði grein fyrir stöðu vinnu við rekstrarúttekt byggðasamlaganna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1409324
08
Gjaldskrá skólamáltíða.
Gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum samþykkt með átta atkvæðum (SHJ,ÁHJ,SDÞ,GVG,BF,SBG,VJ,MG) gegn þremur (SE,HJJ,BÓS).
Málsnúmer 1508214
09
Kosning aðal- og varafulltrúa í íþrótta- og tómstundaráð.
Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Þrastanesi 6, er kosin aðalfulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð í stað Rósönnu Andrésdóttur sem flutt er úr bænum.
Tómas Björnsson, Löngulínu 21, er kosinn aðalfulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð í stað Sigurðar Bjarnasonar, sem beðist hefur lausnar frá setu í ráðinu.
Hildur Jakobína Gísladóttir, Strandvegi 2, er kosin varafulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð í stað Guðrúnar Örnu Kristjánsdóttur, sem flutt er úr bænum.
Hanna Lilja Jóhannsdóttir, Holtási 10, er kosin varafulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð í stað Tómasar Björnssonar sem nú hefur verið kosinn aðalfulltrúi.
Málsnúmer 1508213
10
Kosning aðal- og varafulltrúa í skólanefnd.
Hildur Jakobína Gísladóttir, Strandvegi 2, er kosin aðalfulltrúi í skólanefnd stað Guðrúnar Örnu Kristjánsdóttur, sem flutt er úr bænum.
Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Þrastanesi 6, er kosin varafulltrúi í skólanefnd í stað Rósönnu Andrésdóttur sem flutt er úr bænum.
Málsnúmer 1509018
11
Kosning varamanns í leikskólanefnd.
Unnur B. Johnsen, Hraunhólum 24, er kosin aðalfulltrúi í leikskólanefnd í stað Kristjönu Sigursteinsdóttur, sem flutt er úr bænum.