Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 1/9 ´15.

Málsnúmer 1508028F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (776). fundur

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl. erindi Stjörnunnar um lækkun fasteignagjalda og notaði tilefnið til að óska meistaraflokki kvenna í knattspyrnu til hamingju með glæsilegan sigur í bikarkeppni KSÍ.

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 430.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 2,90% ávöxtunarkröfu sem jafngildir markaðsvirði að fjárhæð kr. 360.187.441.
Bæjarstjórn samþykkir að fara þess á leit að skuldabréfaflokkur með auðkenninu GARD 13 1 og ISIN nr. IS0000022689 verði aukinn um kr. 470.000.000 þ.e. um samsvarandi fjölda eininga en nafnverðseining er kr. 1. Vísað er til heimildar í útgáfusamningi, dags. 8. janúar 2013. Einnig er vísað til útgáfulýsingar dags. 8. janúar 2013. Áður hafa verið gefnar út kr. 1.767.000.000 og verður flokkurinn því að fjárhæð kr. 2.237.000.000 eftir hækkunina. Skuldabréfaflokkur þessi er þegar skráður á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 (2016-208) sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. desember 2014.

Bæjarstjórn samþykkir að við afgreiðslu byggingarleyfis fyrir Urriðaholtsskóla verði fallið frá grenndarkynningu vegna stækkunar byggingarreits, hækkunar hæðarkóta stigahúss um 50 cm og uppbrots á norðurhlið hússins þar sem um óveruleg frávik er að ræða, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar Urriðaholtsskóla við Vörðuveg 1-3.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.

Fundargerðin sem er 12 tl. er samþykkt samhljóða.