Klettás 2 - Umsókn um byggingarleyfi/breytt deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
03
39. (1707). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Klettás 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
31. (1699). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ása í tilefni umsóknar um byggingu á steinsteyptu garðhýsi á lóðinni við Klettás 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að steinsteyptu garðhýsi á lóðinni Klettás 2. Húsið yrði staðsett við lóðarmörk að Hlíðarási. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ása) og vísar henni til grenndarkynningar. Lóðarhafi verður þó í samráði við byggingarfulltrúa að finna lausn á útfærslu þaks sem uppfyllir öryggiskröfur. Öll byggingin skal vera innan lóðarmarka. Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjunnar auk Hraunáss 1, Klettáss 1, Kjarráss 2 og Lerkiáss 1.