Bréf félagsmálastjóra varðandi þjónustukort fyrir eldri borgara, dags. 16.03.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (1680). fundur
Í bréfinu er umsögn fjölskylduráðs um tillögu Fólksins í bænum um þjónustukort fyrir eldri borgara.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs um að vísa tillögunni til skoðunar við endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1501422 - Þjónustukort fyrir eldri borgara. Bæjarráð Garðabæjar vísaði til umfjöllunar í fjölskylduráði tillögu Fólksins í bænum um að eldri borgurum verði boðið upp á sérstök þjónustukort og að þjónusta við eldri borgara verði efld og samræmd.$line$Fjölskylduráð fjallar um erindið. Fjölskylduráð tekur undir það að mikilvægt er að efla og samræma þjónustu við eldri borgara eftir því sem kostur er og leggur í því sambandi áherslu á að sem mest af þjónustu og upplýsingum um þjónustu við eldri borgara verði aðgengilegar í þjónustumiðstöð í Ísafold og í Jónshúsi.$line$Fjölskylduráð leggur til að tillaga um þjónustukort fyrir eldri borgara verði skoðuð samhliða endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum eldri borgara.
Bæjarráð Garðabæjar
03
5 (1673). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í nefnd um málefni eldri borgara og fjölskylduráði.