5 (1673). fundur
5 (1673). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.02.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Stjörnunnar varðandi starfsmannaaðstöðu í vallarhúsi við Stjörnuvöll, dags. 28.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
02
Bréf Stjörnunnar varðandi endurnýjun á vallarklukku, dags. 28.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
03
Bréf Golfklúbbsins Setbergs varðandi fasteignagjöld af golfskála, dags. 28.01.15.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 313.960 til greiðslu fasteignagjalda árið 2015.
04
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins varðandi forgangsakstur, dags. 27.01.15.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
05
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um grunnskóla 426. mál, dags. 29.01.15.
Lagt fram.
06
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um Menntamálastofnun, dags. 28.01.15.
Lagt fram.
07
Bréf Vegagerðarinnar (afrit) til Skógræktarfélags Reykjavíkur varðandi eignarhald á Heiðmerkurvegi, dags. 27.01.15.
Lagt fram.
08
Viðaukar IV og V um uppbyggingu Urriðaholts vegna 2. áf. norðurhluta og Mosagötu
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka IV og V um uppbyggingu í Urriðaholti vegna 2. áfanga norðurhluta og Mosagötu.
09
Bréf félagsmálastjóra varðandi tillögu að gjaldskrárbreytingu í ferðaþjónustu fatlaðs fólks, dags. 27.01.15.
Bæjarráð samþykkir tillögu um lækkun á gjaldskrá ferðþjónustu fatlaðs fólks í Garðabæ úr 340 kr./ferð í 175 kr./ferð.$line$$line$Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkt um að gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu verði endurskoðuð og samræmd fyrir allt svæðið.
10
Erindisbréf fyrir neyðarstjórn Garðabæjar vegna hættuástands.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir neyðarstjórn Garðabæjar sem skal skipuð eftirfarandi aðilum:$line$$line$Aðalmenn:$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, formaður.$line$Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari/lögmaður.$line$Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs.$line$Bergljót Sigurbjörnsdóttir, félagsmálastjóri, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.$line$Margrét Björk Svavarsdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.$line$Hulda Hauksdóttir, upplýsinga- og menningarfulltrúi.$line$$line$Varamenn: $line$Björgvin Magnússon, forstöðumaður eignasjóðs og þjónustumiðstöðvar.$line$Vilhjálmur Haraldsson, mannauðsstjóri.$line$Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri.$line$Katrín Friðriksdóttir, grunnskólafulltrúi.$line$Sunna G. Sigurðardóttir, þjónustustjóri.$line$Vala Dröfn Hauksdóttir, forstöðumaður tölvudeildar.
11
Bréf Námsmatsstofnun varðandi úttekt á leikskólanum Sjálandi, dags. 12.01.15.
Lagt fram bréf Námsmatsstofnunar þar sem fram kemur að fram fari ytra mat á starfsemi Leikskólans Sjálands vorið 2015.
12
Reglur um þróunarsjóður grunnskóla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja reglur um þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ en samkvæmt fjárhagsáætlun er fjárveitingin til sjóðsins kr. 25.000.000.
13
Tillaga bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um þjónustukort fyrir eldri borgara
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í nefnd um málefni eldri borgara og fjölskylduráði.
14
Umsögn um umsókn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í raðhúsi við Sandakur 12.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
15
Samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar.
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um styrk að fjárhæð kr. 300.000 til Tónlistarskóla Garðabæjar vegna tónleika stórsveitar og strengjasveitar skólans ásamt söngvurunum Vigdísi Arnardóttur og Jóni Svavari Jósefssyni í Kirkjuhvoli.