Bréf yfirlæknis Heilsugæslunnar í Garðabæ varðandi stöðu mála á heilsugæslunni, dags. 09.03.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (1680). fundur
Á fund bæjarráðs komu Bjarni Jónasson, Guðrún Hreinsdóttir, Jón Steinar Jónsson, Áslaug Gunnarsdóttir, Ásmundur Jónasson, Gerður A. Árnadóttir, starfandi læknar á Heilsugæslu Garðabæjar. Bjarni Jónasson, yfirlæknir gerði grein fyrir minnisblaði vegna alvarlegrar undirmönnunar heimilislækna í Garðabæ, dags. í mars 2015. Í minnisblaðinu er lagt til að fjölga stöðugildum heimilislækna um 1-2 við Heilsugæsluna á Garðatorgi 7 og setja á laggirnar nýja heilsugæslustöð í vesturhluta Garðabæjar þar sem starfi þrír heimilislæknar.$line$$line$Ræddar voru leiðir til úrbóta og tekur bæjarráð undir að nauðsynlegt er að bregðast markvisst við til að bæta úr mönnun á Heilsugæslu Garðabæjar og tryggja Garðbæingum þá læknisþjónustu sem skylt er veita samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og reglugerð um heilsugæslustöðvar.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita bréf til heilbrigðisráðherra og þingmanna Suðvesturkjördæmisins til að vekja athygli á ástandinu og krefjast úrbóta.