Beint í efni

14. (1731). fundur

19.04.2016
Bæjarráð Garðabæjar

14. (1731). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

19.04.2016

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1602195

01

Holtsvegur 2-6 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna fjölbýlishúss fyrir 24 íbúðir við Holtsveg 2 ? 6.

Málsnúmer 1308500

02

Áskorun um að Garðabær leysi til sín lóðina við Miðskóga 8, dags. 05.04.16.

Lögð fram áskorun um að Garðabær leysi til sín lóðina við Miðskóga 8 ásamt svarbréfi Andra Árnasonar, hrl., fyrir hönd Garðabæjar.

Í bréfinu er áskorun og meintum kröfum á hendur Garðabæ með öllu hafnað.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604139

03

Erindi GKG um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2016

Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 960.835 til greiðslu fasteignagjalda árið 2016.

Málsnúmer 1604144

04

Bréf íbúa við Frjóakur um minnkun graseyja í götunni, dags. 12.04.16.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til frekari úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604160

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Solstice um tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi vegna tónleika í landi Grundar á Álftanesi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt enda liggi fyrir samþykki landeigenda og afstaða íbúa aðliggjandi lóða. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að gætt sé að skilyrðum sem fram koma í 3. mgr. 17. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007 hvað varðar reglu, öryggi, velsæmi o.fl.

Bæjarráð telur nauðsynlegt að leyfið verði útgefið með tímasetningu fyrir hvern einstaka dag.

Málsnúmer 1302504

06

Bréf Áss styrktarfélags varðandi samstarf um uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Unnargrund, dags. 11.04.16

Lagt fram bréf Áss-styrktarfélags þar sem fram kemur að félagið sjái sér ekki fært að koma til samstarfs við Garðabæ um uppbyggingu á búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja undirbúning framkvæmda að uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Unnargrund.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512145

07

Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog - greinargerð um viðræður.

Á fund bæjarráðs mætti Þorbergur Karlsson, verkfræðingur hjá VSÓ og lagði fram og gerði grein fyrir samantekt um viðræður við umsækjendur.

Bæjarráð samþykkir að boða umsækjendur á fund bæjarráðs þriðjudaginn 3. maí nk. til að gera nánari grein fyrir umsóknum sínum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1305744

08

Bréf HBS varðandi umferðarhávaða frá Bæjarbraut, dags. 14.04.16.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir skýrslu sem liggur fyrir um hljóðvist við Bæjarbraut.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604182

09

Erindi ESE um að spilda í landi Akurgerðis Álftanesi verði tekin til skipulags, dags. 12.04.16.

Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs í tengslum við vinnu við gerð nýs aðalskipulags.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604154

10

Bréf yfirfasteignamatsnefndar vegna kæru Húsfélagsins Smiðsbúðar 12 á álagningu fasteignagjalda, dags.12.04.16.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.