Beint í efni

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Solstice um tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi vegna tónleika í landi Grundar á Álftanesi.

Málsnúmer 1604160

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (1731). fundur

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt enda liggi fyrir samþykki landeigenda og afstaða íbúa aðliggjandi lóða. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að gætt sé að skilyrðum sem fram koma í 3. mgr. 17. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007 hvað varðar reglu, öryggi, velsæmi o.fl.

Bæjarráð telur nauðsynlegt að leyfið verði útgefið með tímasetningu fyrir hvern einstaka dag.