Beint í efni

13. fundur

01.04.2014
Bæjarráð Garðabæjar

13. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

01.04.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Bergþóra Sigmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1311358

01

Ársreikningur Garðabæjar 2013.

Auðunn Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhaldsdeildar mættu á fund bæjarráðs.$line$$line$Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2013, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.$line$$line$Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2013 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. $line$$line$Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 3. apríl 2014.

Málsnúmer 1307042

02

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum 2014.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1307042

03

Viðaukar I og II við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014 samkvæmt heimild í ákvæði 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.$line$$line$Kaup á þremur íbúðum við Lækjarfit 7 kr. 68.600.000 Eignfærð fjárfesting$line$Launaliður Garðaskóla kr. 9.759.000 04-212-1110$line$$line$Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.

Málsnúmer 1403520

04

Kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við rými sjúkraþjálfunar og hreyfingar í Ísafold, dags. 18.03.14.

Lögð voru fram drög að áætlun vegna framkvæmda við frágang á rými sjúkraþjálfunar og hreyfingar á Ísafold.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að framkvæmdin verði boðin út með opnu útboði.

Málsnúmer 1403608

05

Framlög til stjórnmálaflokka 2014

Lagt fram minnisblað bæjarritara þar sem fram kemur að samkvæmt fjárhagsáætlun er framlag til stjórnmálaflokka kr. 3.500.000 árið 2014.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu á skiptingu framlagsins.

Málsnúmer 1403519

06

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi seinni hluta stofnfjáraukningar, dags. 21.03.14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um stofnfjáraukningu að fjárhæð 250,0 mkr. Hlutdeild Garðabæjar er 6.79% eða kr. 16.963.776.

Málsnúmer 1401001

07

Tilnefning M-lista á áheyrnarfulltrúa til setu í kjörstjórn og öðrum til vara.

Bæjarráð vísar tilnefningu á áheyrnarfulltrúa til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1306040

08

Bréf SSH varðandi kynningu á vinnslustigi Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, dags. 24.03.14.

Lagt fram og vísað til tækni- og umhverfissviðs.

Málsnúmer 1403545

09

Afgreiðsla byggingarfulltrúa varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir Dalakur 1, dags. 27.03.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til að breyta innra skipulagi og tilfærslu á sorpskýli við Dalakur 1.

Málsnúmer 1403544

10

Afgreiðsla byggingarfulltrúa varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir Dalakur 2, dags. 27.03.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til að breyta innra skipulagi við Dalakur 2.

Málsnúmer 1403558

11

Bréf SSH varðandi vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu - heildarendurskoðun, dags. 24.03.14.

Lagt fram og vísað til tækni- og umhverfissviðs.

Málsnúmer 1312100

12

Fundargerðir verkefnastjórnar um uppbyggingu og framkvæmdir á Kjóavöllum frá 19.02.14 og 11.03.14.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda og kostnaðarskiptingu en árlegt framlag Garðabæjar samkvæmt samningi er 20,0 mkr árin 2012 ? 2016.$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.$line$$line$Páll Hilmarsson vék af fundi eftir afgreiðslu þessa dagskrárliðs.

Málsnúmer 1302504

13

Bréf félagsmálastjóra varðandi búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Garðabæ, dags. 28.03.14.

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur fjölskylduráðs um uppbyggingu á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk við Sjávargrund og vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1306561

14

Bréf félagsmálastjóra varðandi þjónustu við eldri borgara, dags. 28.03.14.

Í bréfinu er kynnt samantekt yfir þjónustu við eldri bæjarbúa en þjónustuyfirlitið er sent öllum bæjarbúum 75 ára og eldri.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra með það að markmiði að samhæfa og bæta þjónustu við eldri borgara í Garðabæ sem veitt er í bæjarfélaginu.

Málsnúmer 1403714

15

Opnun tilboða í sláttuþjónustu sumarið 2014

Lögð fram eftirfarandi tilboð í sláttuþjónustu sumarið 2014.$line$$line$Almenna umhverfisþjónustan kr. 28.998.223 Hverfi 1 og 2$line$Gísl Matthías Sigmarsson kr. 14.487.427 Hverfi 1$line$ sami kr. 11.599.780 Hverfi 2$line$ sami kr. 22.972.805 Hverfi 1 og 2$line$Íslenska gámafélagið kr. 15.540.683 Hverfi 1$line$ sami kr. 11.648.046 Hverfi 2$line$ sami kr. 27.188.729 Hverfi 1og 2$line$Allt fyrir Garðinn kr. 15.448.255 Hverfi 2$line$Garðlist kr. 12.535.761 Hverfi 1$line$ sami kr. 10.419.815 Hverfi 2$line$ sami kr. 21.955.591 Hverfi 1 og 2$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 14.988.751 Hverfi 1$line$ kr. 12.525.520 Hverfi 2$line$ kr. 27.514.271 Hverfi 1 og 2$line$$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Garðlistar og felur bæjarverkfræðingi að undirbúa gerðs samnings um verkefnið.

Málsnúmer 1403711

16

Bréf Hrafnistu varðandi samstarf vegna kynningarbæklings um Hrafnistuheimilunum og starfsemi þeirra, dags. 25.03.14.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1403715

17

Gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.

Bæjarstjóri kynnti drög að bréfi til Vegagerðarinnar þar sem lagt er til að teknar verði upp viðræður aðila um að hefja undirbúning að hönnun og framkvæmdum við endurbætur á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri leiti eftir viðræðum við Vegagerðina um að hefja undirbúning að framkvæmdum við endurbætur á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.

Málsnúmer 1307042

18

Úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.

Bæjarráð samþykkir úthlutun eftirfarandi styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.$line$$line$Sjálfsbjörg kr. 100.000$line$Samtök um Kvennaathvarf kr. 400.000$line$Stígamót kr. 150.000$line$Garðakórinn kr. 300.000