3. fundur
3. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
27.03.2014
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Alma V Sverrisdóttir - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Bergþóra Sigmundsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Jóna Gísladóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Þjónustukaup á fjölskyldusviði
Tekið er fyrir mál nr. 1401501 um Þjónustukaup í félagslegri heimaþjónustu.Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi situr fundinn undir þessum lið. Herdís leggur fram upplýsingar um umfang þjónustu í félagslegri heimaþjónustu. Upplýsingar ræddar. Formanni falið að skoða framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu og útboðsreglur Garðabæjar.
02
Þjónusta við eldri borgara
Tekið er fyrir mál nr. 1306561 varðandi þjónustu við eldri borgara. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi situr fundinn undir þessum lið.Tekið er aftur til umræðu erindi frá bæjarráði dags 3. júlí 2013 varðandi bréf Fólksins í bænum vegna þjónustu við eldri borgara. Erindið er rætt. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, leggur fram samantekt yfir þjónustu við eldri bæjarbúa. Fram kemur hjá Herdísi að þjónustuyfirlit verður sent til bæjarbúa 75 ára og eldri. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með samantektina og leggur til að þjónustuyfirlitið verði einnig gert aðgengilegt á heimasíðu bæjarins og í þjónustuveri Garðabæjar. Fjölskylduráð bendir á að félagsráðgjafi öldrunarmála og heimaþjónustu veitir upplýsingar og ráðgjöf um þjónustu Garðabæjar, ríkis og annarra aðila við eldri Garðbæinga.
03
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk
Tekið er fyrir mál nr. 1302504 um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Sólveig Steinsson, þroskaþjálfi, og Edda Tryggvadóttir, húsnæðisfulltrúi, sitja fundinn undir þessum lið. Lögð er fram og rædd samantekt vinnuhóps um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Hópurinn hefur fundað 4 sinnum frá því í byrjun janúar 2014 til að ræða mögulegar lausnir í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Fjölskylduráð og vinnuhópurinn eru sammála um að leggja eftirfarandi til við bæjarráð Garðabæjar: Að byggður verði íbúðakjarni fyrir fatlað fólk á Sjávargrund samkvæmt deiliskipulagi og að leitað verði til Áss styrktarfélags um byggingu húsnæðisins og rekstur þjónustunnar. Að skoðað verði hvort mögulegt sé að nýta hluta leiguíbúða í Arnarási, sem ætlaðar eru námsmönnum, til búsetu fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Að í yfirstandandi vinnu við aðalskipulag Garðabæjar verði hugað að frekari uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk í bæjarfélaginu. Fjölskylduráð bendir á brýna þörf fyrir skjótar úrlausnir.
04
Félagslegt leiguhúsnæði - beiðni um upplýsingar
Tekið er fyrir mál nr. 1403461 um félagslegt leiguhúsnæði. Edda Tryggvadóttir, húsnæðisfulltrúi, situr fundinn undir þessum lið. Lögð er fram og rædd samantekt húsnæðisfulltrúa með upplýsingum um félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ og nágrannasveitarfélögum, fjölda íbúða og biðlista. Fjölskylduráð þakkar fyrir ágæta samantekt.
05
Ósk um að gerast stuðningsforeldrar
Sjá gögn í trúnaðarmálahluta.
Tekið er fyrir mál nr. 1401117 umsókn um að gerast stuðningsfjölskylda. Fjölskylduráð bókar um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Gerð fóstursamninga
Tekið er fyrir mál nr. 1402045 erindi frá Félagi fósturforeldra dags. 28. janúar 2014. Bréfið er lagt fram og rætt. Með bréfinu vill félagið upplýsa barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra um túlkun félagsins á reglugerð nr. 858/2013 og þannig stuðla að samræmingu milli nefnda við gerð fóstursamninga. Félaginu er þakkað fyrir erindið.
07
31. gr. bvl og umboð fjölskylduráðs til starfsmanna
Tekið er fyrir mál nr. 1403539 varðandi umboð fjölskylduráðs til starfsmanna. Í janúar 2014 hófst tilraunaverkefni um sameiginlegar bakvaktir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Svæðinu er skipt upp í suðursvæði og norðursvæði. Í suðursvæði eru Garðabær, Kópavogur og Hafnarfjörður og sjá barnaverndarstarfsmenn þessara sveitarfélaga um bakvaktir fyrir svæðið. Í barnaverndarmálum getur reynst nauðsynlegt að grípa til neyðarráðstöfunar skv. 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og hefur þurft samþykki formanns fjölskylduráðs fyrir framkvæmd ráðstöfunarinnar. Til að tryggja að hægt sé að framkvæma neyðarráðstafanir þegar nauðsynlegt er ákveður fjölskylduráð eftirfarandi:$line$Ef vinda þarf bráðan bug að neyðarráðstöfun á grundvelli 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem heyrir undir barnaverndarnefnd Garðabæjar geta starfsmenn barnaverndar Garðabæjar og þeir starfsmenn Hafnarfjarðar og Kópavogs sem sinna bakvöktum fyrir barnavernd Garðabæjar, í umboði formanns fjölskylduráðs, framkvæmt neyðarráðstöfun án undangenginnar málsmeðferðar skv. VIII. kafla barnaverndarlaga.