Beint í efni

31. gr. bvl og umboð fjölskylduráðs til starfsmanna

Málsnúmer 1403539

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

3. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1403539 varðandi umboð fjölskylduráðs til starfsmanna. Í janúar 2014 hófst tilraunaverkefni um sameiginlegar bakvaktir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Svæðinu er skipt upp í suðursvæði og norðursvæði. Í suðursvæði eru Garðabær, Kópavogur og Hafnarfjörður og sjá barnaverndarstarfsmenn þessara sveitarfélaga um bakvaktir fyrir svæðið. Í barnaverndarmálum getur reynst nauðsynlegt að grípa til neyðarráðstöfunar skv. 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og hefur þurft samþykki formanns fjölskylduráðs fyrir framkvæmd ráðstöfunarinnar. Til að tryggja að hægt sé að framkvæma neyðarráðstafanir þegar nauðsynlegt er ákveður fjölskylduráð eftirfarandi:$line$Ef vinda þarf bráðan bug að neyðarráðstöfun á grundvelli 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem heyrir undir barnaverndarnefnd Garðabæjar geta starfsmenn barnaverndar Garðabæjar og þeir starfsmenn Hafnarfjarðar og Kópavogs sem sinna bakvöktum fyrir barnavernd Garðabæjar, í umboði formanns fjölskylduráðs, framkvæmt neyðarráðstöfun án undangenginnar málsmeðferðar skv. VIII. kafla barnaverndarlaga.