Eyvindastaðaland 179658,tillaga að íbúðarhúsum.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fyrstu drögum að deiliskipulagi íbúðahúsabyggðar við Lambhúsatjörn sem unnið er að hjá Landslagi ehf.
Vísað til frekari úrvinnslu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafinn verði undirbúningur að gerð deiliskipulags fyrir byggðina við Bessastaðatjörn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Tillaga að byggingum á óbyggðu svæði milli Stekkjar og Asparvíkur við Bessastaðatjörn lögð fram sem unnin hefur verið á vegum landeiganda. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur parhúsum, alls 4 íbúðum. Langendar húsanna snúa að tjörninni og loka ekki fyrir sýn að henni frekar en einbýlishús á þessum stað myndu gera.
Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart tillögunni en mælist til þess að unnið verði deiliskipulag fyrir byggðina við Bessastaðatjörn sem vísað verður í deiliskipulagsferli.
Bæjarráð Garðabæjar
04
11. (1728). fundur
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem hafnað er erindi um að byggja sex raðhús á óbyggðu landi við Bessastaðatjörn milli Asparvíkur og Stekks.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort skipulagsnefnd telji líklegt að heimilað yrði að reisa tvær raðhúslengjur með 6 íbúðum á óbyggðu svæði á milli Stekkjar og Asparvíkur. Skipulagsnefnd telur að raðhús á þessum stað sé ekki í samræmi við byggðarmynstur þyrpingarinnar við Bessastaðatjörn sem samanstendur af einbýlishúsum.
Baldur Ó Svavarsson var vikinn af fundi þegar kom að þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Lögð fram tillaga að skipulagi óbyggðs svæðis á milli Stekkjar og Asparvíkur við Bessastaðatjörn á Álftanesi. Tillagan gerir ráð fyrir 6 raðhúsum.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.