Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 10-12 (Smáíbúðir).
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
44. (1761). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 10-12 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
16. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Viðskiptastrætis sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 10-12. Tillagan gerir ráð fyrir því að á efri hæðum verði heimilaðar íbúðir og gert ráð fyrir allt að 36 smábíbúðum . Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 1.september 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
12. (795). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að heimilaðar verði allt að 36 smáíbúðir á lóðinni við Urriðaholtsstræti 10-12.
Bæjarráð Garðabæjar
04
32. (1749). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að heimilaðar verði allt að 36 smáíbúðir á lóðinni við Urriðaholtsstræti 10-12.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags viðskiptstrætis í Urriðaholti sem gerir ráð fyrir því að á efri hæðum verði heimilaðar íbúðir auk atvinnuhúsnæðis. Áfram verði eingöngu gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Heimilað verði allt að 36 smáíbúðir og gert verði ráð fyrir einu bílastæði á hverja íbúð. Sett eru ákvæði um eitt eignarhald alls húsnæðis í byggingunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni í kynningu samkvæmt 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um breytingu deiliskipulags Viðskiptastrætis sem gera ráð fyrir að byggðar verði smáíbúðir á lóðinni Urriðaholtsstræti 10-12.