Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (1753). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 5 að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.júní til 9.september. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
8. (791). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Vesturhraun 5. Fallið er frá kynningu samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
04
15. (1732). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Vesturhraun 5. Fallið er frá kynningu samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits lóðarinnar Vesturhraun 5 til vesturs.
Tillögunn er vísað til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.