Beint í efni

Unnargrund 1,3,5,7,9 -Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1603167

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að klæðning fari út fyrir lóðarmörk raðhúsanna við Unnargrund 1-5 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

36. (1753). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að klæðning fari út fyrir lóðarmörk raðhúsanna við Unnargrund 1-5 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem að klæðningar á ytra byrði raðhúsa fara út yfir lóðarmörk inn á aðliggjandi lóð sem nemur 12 cm.
Skipulagsnefnd samþykkir að um svo óverulegt frávik sé að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Við útgáfu á lóðarblöðum skal geta um frávik sem kvöð

Bæjarráð Garðabæjar

04

21. (1738). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fimm raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 1 - 9.