Beint í efni

10. fundur

08.08.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.08.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti þá liði sem fjalla um Urriðaholt.

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Ferli við val á aðalskipulagsráðgjöfum rætt. Lögð fram tillaga að forsögn vegna kynningarfunda sem haldnir verða í þriðju viku í september. Skipulagsstjóra falið að senda forsögn til þátttakenda þannig að þeir geti hafið undirbúning kynninga.

Málsnúmer 1308037

02

Hlið á Álftanesi, breyting deiliskipulags

Skipulagsstjóri greinir frá uppbyggingaráformum að Hliði á sviði ferðaþjónustu. Ljóst að ekki verði farið í uppbyggingu nema að skipulagsmál á aðalskipulag-og deiliskipulagsstigi og markmið friðlýsingar fólkvangsins verði tekin til athugunar.

Málsnúmer 1302203

03

Kirkjubrú 1, dsk

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kirkjubrúar sem hefur verið lögðu að gildandi aðalskipulagi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1302201

04

Varir á Álftanesi, deilskipulag

Málinu frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 1212099

05

Hraungata 25-39, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.

Málsnúmer 1304582

06

Víkurgata 2, breyting á dsk Urriðaholts

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.

Málsnúmer 1305509

07

Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir að breytingum á tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts. Skipulagsnefnd fagnar því að vikið skuli frá því að færa leikskólalóð upp fyrir Holtsveg enda verður leikskólinn í góðum tengslum við opið svæði umhverfis Urriðavatn eins og rammaskipulag gerir ráð fyrir.

Málsnúmer 1308041

08

Holtsvegur 51,Urriðaholti, dsk breyting

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.

Málsnúmer 1206220

09

Urriðaholt dsk vesturhluta, breytingar

Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts kynnti hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi vesturhluta sem ná til fjölbýlishúsa við Keldugötu, Hraungötu 2-8, 19-23, 41-45, 47-51 og 53,Kinnargötu 19-23 og 27,Hellagötu 31 og Holtsvegar 51. Stefnt er að því að auglýsa allar breytingartillögur í einu í haust.