Silfurtún, deiliskipulag, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við hana.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1 (1669). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykki bæjarstjórn tillöguna skal hún send til meðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við hana.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
19. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til norðurs þar sem gert er ráð fyrir hljóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi. Tillagan var í kynningu frá 4.júlí til 22.ágúst á þessu ári. Sjö erindi bárust þar sem gerðar voru athugasemdir við tillöguna undirrituð af 24 eintaklingum. Einn einstaklingur var hlynntur gerð hljóðmana eins og sýnt var á skýringamynd með breytingartillögunni, aðrir voru mótfallnir útfærslunni. Vegagerðin gerði athugasemd við staðsetningu hljóðmanar.$line$Í kjölfar kynningar var skoðað með hvaða hætti útfæra hljóðvarnirnar megi þannig að þær komi til móts við athugasemdir. Sú vinna var í höndum Landlags ehf. Boðað var til fundar með íbúum sem haldinn var 4.nóvember. Á þeim fundi voru kynntar hugmyndir um lægri hljóðmanir og hljóðvegg og þær settar í samhengi við fyrirhugaðar hljóðvarnir neðan Hafnarfjarðarvegar vegna uppbyggingar á Unnargrund. Niðurstaða fundarins var sú að breiðust sátt ríki um gerð hljóðveggs í 2,5 metra yfir veghæð og í 4 m fjarlægð frá vegrönd.$line$Skipulagsnefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hljóðvörnum innan þess svæðið sem skilgreint er á uppdrætti sem "hljóðmön/hljóðveggur" í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga. $line$Skipulagsnefnd beinir því til bæjarverkfræðings að útfærsla hljóðvarna verði í formi hljóðveggs í 2,5metrum yfir veghæð og sem næst hljóðgjafa. Hugað verði vel að útfærslu græna svæðisins milli hljóðveggjar og Silfurtúns með frekari gróðursetningu, mótun leiksvæða og að hugað verði að skjólmyndun. Þegar að útfærslu gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar kemur mun Garðabær gera kröfu um að Hafnarfjarðarvegur verði lækkaður eins og kostur er á móts við Silfurtún og hljóðvarnir verði endurskoðaðar með tilliti til þess.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
17. fundur
Þráinn Hauksson hjá Landslagi gerði grein fyrir kostum varðandi útfærslu hljóðvarna. Nefndarformaður greindi frá íbúafundi sem haldinn var þann 4.nóvember sl en þar mættu um 25 manns og hlýddu á kynningu um útfærslu hljóðvarna. Líflegar og gagnlegar umræður urðu á íbúafundi um málið. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
16. fundur
Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti nýjar tillögur að útfærslu hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg. Tillögum vísað til íbúafundar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hjóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi. Tillagan var í kynningu frá 4.júlí til 22.ágúst sl. Athugasemdir sem bárust lagðar fram. Athugasemdir beinast að hæð hljóðvarna, annarsvegar að þær séu og háar og skerði þar afleiðandi útsýni og hinsvegar að þær séu og lágar og uppfylli því vart kröfur um hljóðstig við íbúðarhús. Vegagerð gerir auk þess athugasemd við nálægð hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg skv skýringarmynd.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
07
17. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að skipulagssvæðið stækki til norðurs að Hafnarfjarðarvegi. Gert verður ráð fyrir hljóðmönum meðfram Hafnarfjarðarvegi. Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samráði við Vegagerð um útfærslu hljóðmananna sem kynna skal sem skýringar á deilsskipualgsbreytingu.$line$Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarverkfræðingi falið að ganga frá tillögu útfærslu hljóðmana í samræmi við áherslur skipulagsnefndar og í samráði við Vegagerðina.$line$Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
7. fundur
Lögð fram tillaga deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hljóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi. Viðbrögð Vegagerðarinnar lögð fram. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að skipualagssvæðið verði stækkað til norðvesturs að Hafnarfjarðarvegi og þar gert ráð fyrir hljóðvörnum. Tillögu fylgir ný tillaga að útfærslu Þráins Haukssonar hjá Landslagi á hljóðvörnum sem samanstanda af hljóðvarnarmön og hljóðvarnarvegg. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og leggur áherslu á að umsögn Vegagerðar liggi fyrir áður en haldið verður áfram með málið. Skipulagsnefnd Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að skipualagssvæðið verði stækkað til norðvesturs að Hafnarfjarðarvegi og þar gert ráð fyrir hljóðvörnum. Tillögu fylgdi tillaga að útfærslu Þráins Haukssonar hjá Landslagi á hljóðvörnum sem samanstanda af hljóðvarnarmön og hljóðvarnarvegg. Skipulagsnefnd mælist til þess að skoðað verði betur hvernig útfæra megi hljóðvarnir og taka meira tillit til útsýnis. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.