17. fundur
17. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.05.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Bergþóra Sigmundsdóttir - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
02
Bréf Yrkjusjóðs Skógræktarfélags Íslands varðandi styrk, mótt. 30.04.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu og umfjöllunar umhverfisnefndar.
03
Tillaga skipulagsstjóra um götuheiti og húsanúmeraröð raðhúsabyggðar við Arnarnesvog.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsstjóra um að nafn á nýrri götu við Arnarnesvog verði Unnargrund.
04
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks, dags. 23.04.14.
Lagt fram.
05
Tillaga bæjarfulltrúa Páls Hilmarssonar um athugasemdir vegna skipulagsbreytingu á embætti sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 03.04.14.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðu um málið innan vettvangs stjórnar SSH.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka undir sjónarmið þeirra sem gagnrýnt hafa að ekki hafi verið haft samráð við sveitarfélögin varðandi skipulagsbreytingar á þjónustu sem sýslumannsembættin sinna í heimabyggð. Bæjarráð bendir á að áhugavert geti verið að skoða þann möguleika að sveitarfélögin taki við verkefnum er varða almenna þjónustu við íbúana.
06
Tillaga bæjarfulltrúa Bergþóru Sigmundsdóttur um ráðstöfun á námsmannaíbúðum til fjölskyldna á biðlista eftir félagslegu húsnæði og til fatlaðs fólks, dags. 02.05.14.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til bæjarstjóra.
07
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Holtsveg 35, dags. 30.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á gluggum og innra skipulagi að Holtsvegi 35.
08
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Smiðsbúð 8, dags. 30.04.14.
Afgreiðslu frestað.
09
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Lindarflöt 28, dags. 30.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á hurðum og gluggum að Lindarflöt 28.
10
Bréf Úti og inni sf. f.h. Klettás fasteignafélags varðandi lóð fyrir veitingastað að Ránargrund 2 - 4, dags. 22.04.14.
Bæjarráð fagnar áhuga bréfritara á rekstri veitingastaðar við Arnarnesvog og vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
13
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi staðfestingu og skil á ársreikningi 2013, dags. 28.04.14.
Lagt fram.
14
Bréf Ólafs R. Magnússonar og Ásu Gísladóttur varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes, dags. 28.04.14.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir legu hjólreiðastíg austan við Súlunes samkvæmt nýju deiliskipulagi Arnarness. Fram kom að stígurinn liggur alfarið utan lóða og nánari útfærsla verður kynnt íbúum í tengslum við útgáfu á framkvæmdaleyfi.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg, Silfurtún, deiliskipulag, dags. 30.04.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.