Beint í efni

16. fundur

15.10.2014
Skipulagsnefnd Garðabæjar

16. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.10.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1402138

01

Silfurtún, deiliskipulag, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti nýjar tillögur að útfærslu hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg. Tillögum vísað til íbúafundar.

Málsnúmer 1302203

02

Kirkjubrú 1, dsk

Guðni Pálsson arkitekt gerði grein fyrir mögulegri uppbyggingu á svæðum sem eru vestan og austan við það svæði sem tillaga að deiliskipulagi nær til og hvernig sú byggð gæti tengst miðbæjarsvæði. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1302243

03

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Tillaga að lýsing rædd. Vísað til tækni og umhverfissviðs áður en tillagan verður lögð fram á næsta fundi skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1405177

04

Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.

Einar Ingimarsson arkitekt kynnti tillögu að deiliskipulag Holtsbúðar og Ásbúðar þar sem m.a. er gert ráð fyrir nýrri aðkomu að Holtsbúð 87 (hjúkrunarheimili) frá Karlabraut.$line$Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar með íbúum á forkynningartíma.$line$Í samræmi við 2.mgr. 39.gr. Skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar þar sem að allar megin forsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi.

Málsnúmer 1410118

05

Umsókn um deiliskipulagsbreytingu - leikskólinn Akrar Línakur 2

Lagt fram minnisblað Eflu sem unnin hefur verið að beiðni bæjarverkfræðings dags 9.7.2014. Minnisblaðið fjallar um aðgengi og umferð í kringum leikskólann.$line$Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1401505

06

Holtsvegur 37 og 39, dsk br Vesturhluti Urriðaholts

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir viðbótar hæð á báðum húsum og fjölgun íbúða að Holtsvegi 37 um 3 íbúðir og Holtsvegi 39 um 2 íbúðir. Efstu hæðir verði inndregnar. $line$Tillagan var í kynningu frá 4.júlí til 22.ágúst. Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests. Lögð fram umsögn Urriðaholts ehf og teikning sem sýnir skuggavarp fyrir og eftir breytingu. Breytingar hafa verið gerðar á skilgreiningum bílastæða í samræmi við umsögn Urriðaholts ehf. $line$Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr. 41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1410123

07

Holtsvegur 8-12 dsk breyting v byggingarreita

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipualg Urriðaholts Norðurhluta þar sem að fyrirliggjandi hönnun húss gerir ráð fyrir að byggingin nái lítillega út fyrir byggingarreit á nokkrum stöðum. Skipulagsnefnd heimilar í samræmi við 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga að vikið verði frá ákvæði 2.mgr. sömu greinar þar sem að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Málsnúmer 1306040

08

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.

Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur til við bæjarstjórn að heimilað verði að auglýsa tillögu Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins í samræmi við 3.mgr.33.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.$line$Skipulagsnefnd beinir því til bæjarstjórnar að áður en tillagan verður lögð fram í sveitarstjórnum til samþykktar að loknu auglýsingarferli liggi fyrir með hvaða hætti fjárveitingar ríkisvaldsins tengist skilgreiningum svæðisskipulagstillögunnar á meginstofnbrautum, stofngötum, borgargötum og borgarlínu.$line$Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og að Hafnarfjarðarvegur verði i lokuðum stokki frá þeim gatnamótum og að Lyngási. Skipulagsnefnd lítur svo á að sú uppbygging geti verið í anda fyrirliggjandi svæðisskipulagstillögu þar sem miðstöð almenningssamgangna væri ofan á stokknum en meginþungi bílaumferðar væri í stokknum. Jafnframt áskilur skipulagsnefnd sér rétt til þess að gera athugasemdir við einstök efnisatriði og orðalag í skipulagstillögunni.