Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Holtsveg 8-12, deiliskipulagsbreyting vegna byggingarreita, dags. 15.10.14.

Málsnúmer 1410123

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

40. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfi hússins við Hellagötu 8-12 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

16. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipualg Urriðaholts Norðurhluta þar sem að fyrirliggjandi hönnun húss gerir ráð fyrir að byggingin nái lítillega út fyrir byggingarreit á nokkrum stöðum. Skipulagsnefnd heimilar í samræmi við 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga að vikið verði frá ákvæði 2.mgr. sömu greinar þar sem að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.