Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Holtsveg 37 og 39, deiliskipulagsbreyting - Vesturhluti Urriðaholts, dags. 15.10.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
40. fundur
Bæjarráð samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Holtsveg 37 og 39 verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu samkvæmt 3. mgr. 41. skipulagslaga nr. 123/2010 en engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna í auglýstum athugasemdarfresti.$line$$line$Bæjarráð bendir á að samkvæmt samningi um uppbyggingu Urriðaholts, dags. 20. apríl 2007 ber lóðarhafa að greiða sérstakt framlag til skólamála vegna fjölgunar íbúða sem nemur kr. 698.818 á hverja íbúð miðað við BVT í október 2014.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
16. fundur
Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir viðbótar hæð á báðum húsum og fjölgun íbúða að Holtsvegi 37 um 3 íbúðir og Holtsvegi 39 um 2 íbúðir. Efstu hæðir verði inndregnar. $line$Tillagan var í kynningu frá 4.júlí til 22.ágúst. Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests. Lögð fram umsögn Urriðaholts ehf og teikning sem sýnir skuggavarp fyrir og eftir breytingu. Breytingar hafa verið gerðar á skilgreiningum bílastæða í samræmi við umsögn Urriðaholts ehf. $line$Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr. 41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts þar sem óskað er eftir fjölgun íbúða að Holtsvegi 37 um 3 íbúðir og Holtsvegi 29 um tvær íbúðir. Áður hafði skipulagsnefnd heimilað kynningu á breytingartillögu þar sem inndreginni hæð verði bætt ofan á bæði hús.$line$Skipulagsnefnd heimilar kynningu breytingartillögunar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
7. fundur
Lögð fram tllaga að breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir heimild til að hafa inndregna hæð ofan á báðum húsum til viðbótar gildandi skilmálum. Lögð fram jákvæð umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulgasnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr og 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort nefndin gæti fallist á setja tillögu um viðbótarhæð ofan á fjölbýlishúsin Holtsveg 37 og 39 sem standa beggja vegan Urriðakotsstígs.$line$Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. Afla skal umsagnar deiliskipulagshöfundar.