15. fundur
15. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
15.04.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi ársreikning og ársskýrslu fyrir árið 2013, dags. 07.04.14.
Lagt fram.
02
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi breytingar á búningsaðstöðu á Stjörnuvelli, dags. 07.04.14.
Í bréfinu er farið fram á að hafnar verði framkvæmdir við nauðsynlegar úrbætur á búningsaðstöðu á Stjörnuvelli vegna þátttöku meistaraflokka félagsins í Evrópukeppni á komandi sumri.$line$$line$Bæjarverkfræðingur kynnti undirbúning framkvæmdanna en fjárveiting vegna þeirra er á fjárhagsáætlun 2014.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að hafist verði handa við umræddar framkvæmdir.
03
Bréf SSH varðandi sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, dags. 07.04.14.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á svæðinu ásamt tillögu að sameiginlegum reglum um ferðaþjónustuna og þjónustulýsingu vegna verkefna Strætó bs. við framkvæmd þjónustunnar.
04
Bréf íþróttafulltrúa og skólastjóra Garða- og Flataskóla varðandi umferð og bílastæði við Ásgarð, Garða- og Flataskóla, dags. 10.04.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
05
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir GKG, dags. 08.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna salernisaðstöðu við golfskála GKG við Vífilsstaði.
06
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Löngulínu 20-26, dags. 09.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um endurnýjun á byggingarleyfi vegna Löngulínu 20 - 26.
07
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Rjúpnahæð 11, dags. 09.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna nýbyggingar við Rjúpnahæð 11
08
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Stekkjarflöt 14, dags. 11.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna nýbyggingar við Rjúpnahæð 11
09
Bréf Golfklúbbsins Setberg varðandi fasteignagjöld vegna áranna 2012, 2013 og 2014, dags. 10.04.14.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbnum Setbergi styrk að fjárhæð kr. 968.496 til greiðslu fasteignagjalda fyrir árin 2012, 2013 og 2014.
10
Bréf Innanríkisráðuneytisins varðandi framlög úr Jöfnunarsjóði á árinu 2014, dags. 02.04.14.
Lagt fram.
11
Verðkönnun tölvubúnaðar 2014.
Á fund bæjarráðs mætti Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar og gerði grein fyrir tilboðum í tölvubúnað en um er að ræða tilboð í borðtölvur, fartölvur í fartölvuvagna skóla og fartölvur starfsmanna.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu tölvudeildar um að ganga til samninga við Nýherja um kaup á Lenovo tölvum í öllum ofangreindum flokkum.$line$$line$Erling Ásgeirsson vék sæti við afgreiðslu málsins.
13
Bréf Hafnarfjarðar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum, dags. 13.03.14.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar um breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyramölum en um er að ræða breytingu á sameinginlegu deiliskipulagi sveitarfélaganna.
14
Bréf Ljósakurs ehf. varðandi Holtsveg 37 og 39, breyting á deiliskipulagi á vesturhluta Urriðaholts, dags. 20.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
15
Uppbygging leikskóla á Vífilsstöðum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi endurbætur á læknahúsi á Vífilsstöðum en komið hefur í ljós að mun kostnaðarsamara er að endurnýja húsið fyrir starfsemi leikskóla en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. $line$$line$Bæjarstjóri lagði til að í stað þess að endurnýja húsið á þessu stigi verði lausar stofur við Hofsstaðaskóla, sem þurfa að víkja fyrir nýbyggingu við skólann, fluttar á lóð Vífilsstaða fyrir starfsemi leikskóla. $line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og felur honum að vinna áfram að málinu.