Beint í efni
Uppbygging leikskóla á næstu árum
Málsnúmer 1302428
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Formaður fór yfir fjölda íbúa í Garðabæ og fjölda barna á leikskólaaldri á síðastliðnum árum. Einnig kynnti hann helstu skref í uppbyggingu leikskóla á næstu árum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. fundur
Lagðir fram uppdrættir vegna stækkunar ungbarnaleikskóla á Vífilsstöðum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
15. fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi endurbætur á læknahúsi á Vífilsstöðum en komið hefur í ljós að mun kostnaðarsamara er að endurnýja húsið fyrir starfsemi leikskóla en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. $line$$line$Bæjarstjóri lagði til að í stað þess að endurnýja húsið á þessu stigi verði lausar stofur við Hofsstaðaskóla, sem þurfa að víkja fyrir nýbyggingu við skólann, fluttar á lóð Vífilsstaða fyrir starfsemi leikskóla. $line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og felur honum að vinna áfram að málinu.
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
30. fundur
Staða biðlista og úrræði
Rætt var um stöðu biðlistans og þau úrræði sem gripið verður til á næstu mánuðum. Viðbygging verður gerð við Litlu Ása á Vífilstöðum sem mun rúma yngstu börnin á biðlistanum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
28. fundur
Hjördís Ólafsdóttir leikskólastjóri Krakkakots, Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Akra og Ragnhildur Gunnlaugsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Akra kynna hugmynd um aukið samstarf leikskólanna.$line$Einnig verður farið yfir stöðu á framkvæmdum vegna Flataskóla og Lundabóls.
Gestir fundarins kynntu tillögu að samstarf Akra og Krakkakots næsta vetur. Leikskólanefnd mælir með tillögunni og beinir henni til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.$line$Farið yfir stöðuna á Flataskóla og Lundabóli, en verið er að vinna í að teikna upp breytingar í báðum skólunum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
27. fundur
Farið yfir stöðu á biðlista fyrir haustið og aðgerðir.$line$Einnig var farið yfir fjölda barna í vistun hjá dagforeldrum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
07
26. fundur
Gunnar Einarsson bæjarstjóri er gestur fundarins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um fjölgun leikskólarýma. Má þar fyrst nefna stækkun Lundabóls. $line$Einnig er verið að vinna að því að þróa leikskóladeild fyrir 4 og 5 ára börn í Flataskóla í samráði við skólastjórnendur.$line$Samhliða þessu er verið er að skoða frekari uppbyggingu ungbarnaleikskóla.$line$Að lokum nefndi bæjarstjóri að áætlað er að fyrsti áfangi leik- og grunnskóla í Urriðaholti verði tekinn í gagnið haustið 2016.$line$Umræður urðu um málið. Fram kom að mikilvægt er að leikskólanefnd sé upplýst um byggðarþróun í Garðabæ svo að hún geti brugðist við þörf íbúa fyrir leikskóladvöl og vistun hjá dagforeldrum.
Bæjarráð Garðabæjar
08
11. fundur
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samning við Sjáland ehf. um starfsemi fimm ára deildar í húsnæði Sjálandsskóla.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
Bæjarráð Garðabæjar
09
8. fundur